Íþróttir

Mikil stemning á 1000 metra Kónginum
Mánudagur 6. júlí 2026 kl. 17:21

Mikil stemning á 1000 metra Kónginum

bestu skyttur landsins mættust í spennandi keppni

Í gær, sunnudag, fór fram 1000 Metra Kóngurinn 2026 á skotsvæði Skotfélags Keflavíkur-Hafna. Mótið tókst afar vel og mætti fjöldi af bestu langdrægniskyttum landsins til leiks, þar sem keppnin var bæði hörð og spennandi frá fyrsta skoti til þess síðasta.

Frumkvöðull mótsins og mótshaldari, Bjarni Valsson, þróaði keppnina eftir amerískri fyrirmynd þar sem keppt er í hinu þekkta King of 2 Miles móti. Markmiðið var að skapa íslenska útgáfu sem reynir á sömu færni, nákvæmni og undirbúning við íslenskar aðstæður. Úr varð 1000 Metra Kóngurinn, sem hefur þegar skapað sér sess meðal áhugamanna um langdrægniskotfimi.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Veðrið lék að mestu við keppendur. Vindurinn var yfirleitt hægur en tók sig reglulega upp í snöggum vindkviðum sem gerðu skotin mun erfiðari. Í langdrægniskotfimi geta jafnvel smávægilegar breytingar á vindhraða og vindátt haft veruleg áhrif á flug kúlu og því reyndi á mikla reynslu, gott vindmat og yfirvegun keppenda.

Stemningin var einstaklega góð og ríkti mikil virðing og samheldni meðal keppenda. Þar voru saman komnir einstaklega öflugir skotmenn, hver öðrum betri, sem sýndu glæsilega frammistöðu allan daginn.

Eftir harða keppni stóð að lokum einn sigurvegari uppi. Hann sýndi einstaka nákvæmni og missti aðeins eitt skot á 500 metra færi, sem undirstrikar hversu mikil færni, reynsla og einbeiting þarf til að ná árangri í þessari krefjandi íþrótt

Verðlaunahafar – 1000 metra Kóngurinn 2026

  1. sæti: Stefán Eggert Jónsson 1000 Metra Kóngurinn 2026 með 18.071 stig.
  2. sæti: Gísli Rúnar Kristinsson með 14.091 stig.
  3. sæti: Kristinn Guðmundsson með 13.363 stig.

1000 metra Kóngurinn hefur með þessu móti enn á ný sannað að langdrægniskotfimi á sér sterkan sess á Íslandi og ljóst er að áhugi á greininni fer sífellt vaxandi. Aðstandendur þakka öllum keppendum, fyrir frábæran dag og hlakka nú þegar til að halda mótið aftur árið 2027.

Skotsýn, sem var styrktaraðili mótsins og lagði til glæsileg verðlaun og gjafabréf fyrir alla keppendur.

Úrslit – 1000 metra Kóngurinn 2026

  1. sæti– Stefán Eggert Jónsson– 18.071 stig (missti aðeins eitt skot á 500 metrum)
  2. sæti– Gísli Rúnar Kristinsson– 14.091 stig
  3. sæti– Kristinn Guðmundsson– 13.363 stig
  4. sæti– Jón Þór Sigurðsson – 12.606 stig
  5. sæti– Pálmi Skúlason – 12.177 stig
  6. sæti– Steinar Smári Guðbergsson – 11.894 stig
  7. sæti– Karl Kristinsson – 9.569 stig
  8. sæti– Þorsteinn Egilson – 8.315 stig
  9. sæti– Kristinn J. Erlingsson – 8.049 stig
  10. sæti– Davíð Valdimar Arnalds – 7.685 stig
  11. sæti– Bjarni Valsson – 7.607 stig
  12. sæti– Nikolai Sófus Berthelsen – 5.737 stig
  13. sæti– Heimir S Haraldsson – 4.563 stig
  14. sæti– Jóhann Sigurjónsson – 2.993 stig

1000 metra Kóngurinn