Logi lenti í vandræðum en Róbert Smári meðal tíu efstu
Sex kylfingar frá Suðurnesjum eru meðal keppenda á Íslandsmótin í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík. Róbert Smári Jónsson er jafn í 8. sæti eftir tvo keppnisdaga en Logi Sigurðsson, Íslandsmeistari 2023, lenti í hremmingum í fyrsta hringnum en komst í gegnum niðurskurðinn með góðum öðrum hring en er talsvert frá toppbaráttunni.
Róbert lék fyrstu tvo hringina á tveimur yfir pari og var jafn í 8. sæti á 144 höggum. Logi var á átta höggum yfir pari og í 30. sæti en kappinn fékk slæma „sprengju“ eins og sagt er þegar hann lék 4. brautina í fyrsta hring á 11 höggum, 7 yfir pari.
Þeir félagar voru þeir einu af Suðurnesjakylfingum í karlaflokki sem komust í gegnum niðurskurðinn.
Pétur Þór Jaidee lék á tólf yfir pari og var höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn sem var við 11 högg yfir pari.
Snorri Rafn William Davíðsson lauk leik á 13 yfir pari og Guðmundur Freyr Sigurðsson lék á tuttugu yfir pari.
Fjóla Margrét Viðarsdóttir var langt frá sínu besta og lék á 21 höggi yfir pari og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Fjóla hefur staðið sig vel í keppnum á þessu ári og var m.a. í toppbaráttunni á stigamóti á Korpúlfsstaðavelli í vor og fleiri mótum.

Róbert Smári hefur leikið vel. Pétur Jadee lengst til vinstri, var höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.

Fjóla Margrét náði sér ekki á strik á Íslandsmótinu, hér er hún á Korpúlfsstaðavelli á fyrsta keppnisdegi.








