Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Gylfi er nýr formaður Knattspyrnudeildar UMFN
Föstudagur 20. mars 2020 kl. 07:22

Gylfi er nýr formaður Knattspyrnudeildar UMFN

Aðalfundur knattspyrnudeildar UMFN fór fram á mánudagskvöld. Það var fín mæting á fundinn þrátt fyrir þær aðstæður sem eru núna. Fundastjóri var Styrmir Gauti Fjeldsted sem stýrði fundinum af röggsemi. Árni Þór Ármannsson flutti skýrslu stjórnar og Guðni Þór Gunnarsson, endurskoðandi, fór yfir ársreikinginn. Rekstur deildarinnar á liðnu ári gekk ágætlega en nokkur samdráttur var í tekjum.

Það lá fyrir að Árni Þór myndi ekki gefa kost á sér áfram sem formaður, nýr formaður var kjörinn Gylfi Þór Gylfason í hans stað. Þá var einnig ljóst að þeir Arnór Björnsson, Andri Örn Víðisson, Sigurður Hilmar Ólafsson og Viðar Einarsson myndu ekki gefa kost á sér áfram. Í þeirra stað munu Ágúst Aðalbjörnsson, Davíð Arthur Friðriksson, Haukur Aðalsteinsson, Hjalti Már Brynjarsson koma inn í nýja stjórn og í varastjórn þeir Aron Hlynur Ásgeirsson, Helgi Már Vilbergsson og Árni Þór Ármannsson.

Public deli
Public deli

Fráfarandi stjórnarmönnum voru þökkuð góð störf fyrir deildina. Það er ljóst að ný stjórn tekur við nú á tímum mikillar óvissu í þjóðfélaginu og heiminum. Framundan er að meta stöðuna í því umhverfi sem við búum í. Það er ljóst að eftir að KSÍ frestaði öllum leikjum í mánuð að öll knattspyrnuiðkun innan deildarinnar muni riðlast. Allar æfingar yngri flokka liggja niðri fram á næstkomandi mánudag að minnsta kosti, ekki er ljóst hvernig æfingum í meistaraflokki verður háttað en það verður reynt að halda þeim úti.