Fjögur stig í hús Suðurnesjaliðanna í Lengjudeild kvenna
Fjórða umferð Lengjudeildar kvenna fór fram á fimmtudagskvöldið og voru lið Keflavíkur og Grindavíkur/Njarðvíkur í eldlínunni. Keflavík þurfti að sætta sig við jafntefli á móti ÍA á útivelli en sameinað lið Grindavíkur/Njarðvíkur vann lið Gróttu á heimavelli.
ÍA-Keflavík 1-1
Keflavíkurkonur lentu undir en Hilda Rún Hafsteinsdóttir jafnaði á 74. mínútu.
Grindavík/Njarðvík - Grótta 3-2
Grindavík/Njarðvík lenti 0-2 undir en en mörk frá Danai Kaldaridou, Emmu Nichol Phillips og Tinnu Hrönn Einarsdóttur á 89. mínútu, tryggðu sigurinn.
Grindavík/Njarðvík er í þriðja sæti deildarinnar með 7 stig, ÍBV er efst með 9 stig. Keflavík er í sjöunda sæti með 5 stig.
Næstu leikir liðanna:
Mið 28. maí kl. 19:15
Haukar - Grindavík/Njarðvík
Keflavík - HK