Greifarnir
Greifarnir

Íþróttir

Ásgeiri Orra líður vel í Bestu deildinni: „Lít mikið upp til Neuer“
Þriðjudagur 7. júlí 2026 kl. 11:47

Ásgeiri Orra líður vel í Bestu deildinni: „Lít mikið upp til Neuer“

Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, var mjög sáttur við eitt stig eftir 1–1 jafnteflið gegn Fram á HS Orku vellinum í gærkvöldi. Hann segir andann í leikmannahópnum frábæran og finnur fyrir miklum mun á milli efstu deildar og Lengjudeildarinnar.

Keflvíkingar lentu undir í seinni hálfleik en tókst að jafna metin og tryggja sér annað stigið gegn sterku liði Fram. Ásgeir Orri var sáttur við frammistöðu liðsins en nefndi að þeir hefðu mátt koma boltanum oftar inn í teiginn til að skapa hættu.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í samtali eftir leik lýsti hann því yfir að honum liði vel í deildinni og nyti góðs af því að vera með flotta varnarmenn fyrir framan sig. Þá ræddi hann einnig um heimsmeistaramótið í fótbolta og sagði þýska markvörðinn Manuel Neuer vera sína helstu fyrirmynd, enda hafi hann breytt markvarðarstöðunni.

Sjáðu myndbandsviðtalið við Ásgeir Orra í heild sinni í spilaranum hér að neðan.