Alexander Birgir sló í gegn á Genuine Cup í Houston – Skoraði níu mörk
Alexander Birgir Björnsson, liðsstjóri meistaraflokks kvenna hjá Grindavík/Njarðvík, stóð sig frábærlega með íslenska landsliðinu á alþjóðlega mótinu Genuine Cup, sem fram fór í Houston í Bandaríkjunum dagana 27. júlí til 1. ágúst síðastliðinn.
Alexander, sem er harður Grindvíkingur en hefur undanfarið búið rétt við JBÓ-völlinn í Njarðvík, gerði sér lítið fyrir og skoraði níu mörk á mótinu og var landsliðinu innan handar á glæsilegum árangri þeirra í Bandaríkjunum.
Alexander hefur verið lykilmaður á bak við tjöldin hjá kvennaliðinu um árabil og hefur í sumar einnig starfað í vallarhúsinu í Njarðvík við ýmis verkefni. Þar hefur hann vakið mikla lukku meðal leikmanna meistaraflokkanna sem og gesta vallarhússins fyrir hressilegt viðmót og góð störf.
Knattspyrnudeildir Njarðvíkur og Grindavíkur óska Alexander innilega til hamingju með glæsilegan árangur og glæsilega frammistöðu ytra í færslu á samfélagsmiðlum.






