Viðreisn býður fram í Reykjanesbæ
Viðreisn mun bjóða fram lista fyrir sveitarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu. Ákveðið var að stilla upp á lista.
„Ég fer inn í þetta verkefni fullur tilhlökkunar og ég veit að við eigum svo sannarlega erindi“, segir Arnar Páll Guðmundsson, formaður Viðreisnar á Suðurnesjum. „Síðustu mánuði höfum við verið að byggja upp öfluga grasrót og erum tilbúin og staðráðin í að mynda öflugt, ábyrgt en umfram allt fjörugt framboð í Reykjanesbæ. Með skýra framtíðarsýn, öflugu baklandi og jákvæðu hugarfari er Viðreisn tilbúin að stíga næstu skref og leggja sitt af mörkum til framfara í Reykjanesbæ“.
Hluti af fólki sem var í framboðinu Beinni leið í Reykjanesbæ hefur gengið til liðs við Viðreisn. Bein leið mun því ekki bjóða fram eftir að hafa verið þrjú síðustu kjörtímabil í meirihluta bæjarstjórnarReykjanesbæjar.
Í uppstillingarnefnd sem kosin var sitja Bjarklind Sigurðardóttir, Haukur Hilmarsson, Ingi Eggert Ásbjarnarson, Jón Garðar Snædal Jónsson og Þórey Svanfríður Þórisdóttir. Stefnt er að því að framboðslistinn verði tilbúinn í lok janúar. Áhugasamir geta haft samband við Viðreisn á Suðurnesjum með því að senda póst á [email protected].








