Fréttir

Viðbragðsáætlun vegna eldgoss við Grindavík undirrituð
Mánudagur 4. janúar 2021 kl. 09:37

Viðbragðsáætlun vegna eldgoss við Grindavík undirrituð

Viðbragðsáætlun vegna eldgoss við Grindavík var undirrituð milli jóla og nýárs af Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra, Úlfari Lúðvíkssyni lögreglustjóra á Suðurnesjum og Fannari Jónssyni bæjarstjóra í Grindavík. Áætlunin tók gildi 1. janúar 2021.

Viðbragðsáætlunin segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar eldgoss eða annarra hamfara við Grindavík, í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum. Hún er unnin af almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og almannavarnanefndum Grindavíkur. Allir viðbragðsaðilar og aðrir sem nefndir eru í áætluninni voru hafðir með í ráðum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Áætlunin heitir viðbragðsáætlun vegna eldgosa við Grindavík. Þá er mögulegt að notast við sömu áætlun þegar þörf er á rýmingu vegna einhvers konar annara hamfara.