Rétturinn atvinna
Rétturinn atvinna

Fréttir

Upplýsingafundur Almannavarna kl. 13 á laugardag
Föstudagur 17. nóvember 2023 kl. 21:25

Upplýsingafundur Almannavarna kl. 13 á laugardag

Upplýsingafundur Almannavarna verður haldinn kl. 13:00 á morgun, laugardaginn 18. nóvember, í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð.

Fundinum stýrir Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra fer á fundinum yfir stöðu mála eftir atburði síðustu viku í Grindavík.

Einnig verða á fundinum Fannar Jónasson, bæjarstjórinn í Grindavík og Kristín Jónsdóttir frá Veðurstofu Íslands.

Gert er ráð fyrir að fjölmiðlafólk geti spurt spurninga á fundinum sjálfum og tekið viðtöl eftir fund. Fundinum verður streymt á facebooksíðu Almannavarna.