Þyrla leitar á Suðurnesjum
Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú við leit á Suðurnesjum og flýgur TF-GNA með strandlengjunni. Hún fór með ströndinni í Reykjanesbæ rétt í þessu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir Almari Yngva Garðarssyni, 29 ára. Almar Yngvi er 190 cm á hæð, grannur, dökkhærður og með skeggrót. Hann er sennilega klæddur í hvíta hettupeysu, svörtu 66 vesti og gráum íþróttaskóm.
Síðast er vitað um ferðir hans í Hafnarfirði milli kl. 02 og 03 aðfaranótt sunnudagsinns 19. desember. Almar gæti verið á bifreiðinni HUX90 sem er grár Chevrolet Spark bílaleigubíll.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Almars eru beðnir um að hafa strax samband við lögregluna í síma 112.