Stutt við smærri atvinnurekendur í Grindavík
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) undirrituðu í vikunni samning um fjárstuðning við atvinnurekendur í Grindavík. Heildarframlag ríkisins verður 50 milljónir kr.
Stuðningurinn er einkum ætlaður einyrkjum og smærri fyrirtækjum sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, eru í rekstri og hafa einn starfsmann á skrá og veltu undir 500 milljónum króna. Fjármunum skal breyta til verkefna sem snúa að markaðssetningu, vöruþróun og nýsköpun. Styrkjum er ekki ætlað til að kaupa upp eignir eða greiða skuldir.
Opnað verður fyrir umsóknir um fjárstuðning 7. júlí og er umsóknarfrestur til og með 18. ágúst. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum mun fara með verkefnastjórn og umsýslu og verða fjármunum úthlutað í gegnum Uppbyggingarsjóð Sóknaráætlunar Suðurnesja og gilda almennar reglur sjóðsins um umsóknir.