Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Skipulagsbreytingar samþykktar fyrir Suðurbakka Helguvíkur
Séð yfir Helguvíkurhöfn í gærmorgun. VF/hilmarbragi
Miðvikudagur 11. mars 2026 kl. 08:16

Skipulagsbreytingar samþykktar fyrir Suðurbakka Helguvíkur

Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar fór nýverið yfir stöðu mála við vinnslu á aðal- og deiliskipulagi fyrir Suðurbakka Helguvíkurhafnar. Framtíðarsýn hafnarinnar til ársins 2035 gerir ráð fyrir að þar verði byggður upp nýr 400 metra langur viðlegukantur sem mun hýsa birgastöð fyrir skipaeldsneyti og bjóða upp á tengingu fyrir farþega- og vöruflutningsferjur.

Í tengslum við þessa uppbyggingu hefur bæjarstjórn staðfest óverulega breytingu á aðalskipulagi sem felur í sér að sérstakur reitur fyrir olíutanka er felldur niður, þar sem slík starfsemi er þegar heimild innan almenns hafnarsvæðis. Samtímis var gerð hliðrun á reit undir skolpdælustöð en landnotkun helst að öðru leyti óbreytt á svæðinu. Umhverfis- og skipulagsráð hefur jafnframt samþykkt að breyting á deiliskipulagi Helguvíkur fyrir hafnarsvæðið, viðlegukant og lóð undir skipaolíutanka verði auglýst til opinberrar kynningar.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Þessar breytingar eru mikilvægur liður í því að raungera framtíðaráform Reykjaneshafnar í Helguvík, en þar er einnig horft til aukins innflutnings á sementi og koltvísýringi auk útflutnings á vetnisorku og laxaafurðum á Ameríkumarkað.