Niðurrif í Helguvík hefst fljótlega
Niðurrif húsnæðis kísilversins í Helguvík mun hefjast fljótlega og nýjar atvinnulóðir verða auglýstar. Þetta kemur fram í bókun meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á bæjarstjórnarfundi 3. mars.
Í bókuninni segir:
„Meirihluti Reykjanesbæjar fagnar því að verið sé að samþykkja kaup á stórum hluta af lóð kísilversins, aftur til bæjarins. Nú kemur lóðin og afsal hennar aftur til okkar og við getum dregið hér línu í sandinn á því sorgarverkefni sem uppbygging þungs iðnaðar í Helguvík var.
Loforð um 300 störf, bestu mengunarvarnir sögunnar og best launuðu störf í manna minnum eru tálmyndir sem urðu ekki. Nú getum við í Reykjanesbæ, níu árum síðar, andað léttar og skipulagt okkur til framtíðar.
Nú fljótlega verður hafist handa við niðurrif verksmiðjunnar á lóð Reykjanesbæjar og hægt verður að auglýsa nýjar atvinnulóðir við höfnina okkar.
Við fögnum þessum verðuga áfanga og þessum nýju tímamótum fyrir framtíð Reykjanesbæjar.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Sigurrós Antonsdóttir Samfylkingunni, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.



