Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Tvö þúsundasti íbúinn í Vogum
Guðrún bæjarstjóri heimsótti fjölskylduna í tilefni tímamótanna.
Miðvikudagur 11. mars 2026 kl. 10:09

Tvö þúsundasti íbúinn í Vogum

Tvö þúsundasti íbúinn í Vogum er Huginn Ari Richter, tæplega tveggja ára drengur, sem nýlega flutti í sveitarfélagið ásamt fjölskyldu sinni. Guðrún Ólafsdóttir, bæjarstjóri fór og heilsaði upp á fjölskylduna og bauð þau velkominn í sveitarfélagið með góðum gjöfum til Hugins Ara.

Svo skemmtilega vill til að Huginn Ari er systursonur Alexöndru Lífar Ingþórsdóttur sem eins og margir muna varð þúsundasti íbúi sveitarfélagsins fyrir ríflega 20 árum.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir