Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Metfjöldi umsókna í menningarsjóð Reykjanesbæjar
Miðvikudagur 11. mars 2026 kl. 07:19

Metfjöldi umsókna í menningarsjóð Reykjanesbæjar

Mikill áhugi er á menningarstarfsemi í Reykjanesbæ en umsóknir um verkefnastyrki úr menningarsjóði sveitarfélagsins tvöfölduðust á milli ára. Guðlaug María Lewis, menningarfulltrúi, kynnti umsóknir ársins 2026 fyrir menningar- og þjónusturáði, en alls bárust 40 umsóknir um verkefnastyrki að upphæð 18 milljónir króna, auk þess sem átta menningarhópar sóttu um þjónustusamninga.

Heildarfjárhæð til úthlutunar úr sjóðnum nam tæpum sex milljónum króna og var ákveðið að styrkja 13 verkefni um samtals 3,2 milljónir króna. Þá var 2.450.000 krónum ráðstafað í þjónustusamninga við þá átta menningarhópa sem sóttu um. Meginmarkmið sjóðsins er að efla menningarstarf í bænum og fagnar ráðið þeim mikla metnaði sem íbúar sýna með þátttöku sinni.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir