Fréttir

Skipafloti Landhelgisgæslunnar með heimahöfn í Reykjanesbæ?
Fimmtudagur 29. október 2020 kl. 09:21

Skipafloti Landhelgisgæslunnar með heimahöfn í Reykjanesbæ?

Stjórn Reykjaneshafnar hefur móttekið bréf frá dómsmálaráðuneytinu þar sem áhuga er lýst á að skoða möguleika á því að skipastóll Landhelgisgæslu Íslands (LHG) hafi aðstöðu hjá Reykjaneshöfn. Bréfið er svarbréf við sameiginlegu erindi Reykjaneshafnar og Reykjanesbæjar frá 30. apríl síðastliðnum til LHG þar sem boði var upp á viðræður um möguleika á framtíðarhafnaraðstöðu fyrir skipastól LHG hjá Reykjaneshöfn.

„Stjórn Reykjaneshafnar fagnar því að skoðaður sé möguleiki á því að framtíðaraðstaða skipastóls Landhelgisgæslu Íslands verði hjá Reykjaneshöfn og felur hafnarstjóra að vinna það mál áfram í samráði við bæjaryfirvöld Reykjanesbæjar,“ segir í afgreiðslu hafnarstjórnar sem var samþykkt samhljóða.

Public deli
Public deli