Fréttir

Samkaup skora á landbúnaðarráðherra að auka grænmetisræktun á Íslandi
Úr ávaxta- og grænmetisdeild í Nettó.
Föstudagur 20. mars 2020 kl. 09:24

Samkaup skora á landbúnaðarráðherra að auka grænmetisræktun á Íslandi

Samkaup sendi Kristjáni Þór Júlíussyni landbúnaðarráðherra í gær sérstaka áskorun um að auka grænmetisræktun á Íslandi. Í bréfi til ráðherra er hvatt til þess að í boðuðum aðgerðum stjórnvalda til þess að hamla gegn efnahagskreppu verði sérstaklega ýtt undir innlenda grænmetisframleiðslu með opinberum ráðstöfunum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Í bréfinu segir að framleiðsla á grænmeti á heimsvísu kunni að dragast saman þar sem framleiðendur ytra eigi erfitt með að starfrækja fyrirtæki sín á fullum afköstum. Nú þegar séu tafir á fluningsleiðum farnar að hafa mikil áhrif á framboð auk þess sem miklar verðhækkanir eru í kortunum. Því skipti mestu að hægt verði að tryggja aukna framleiðslu innanlands.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Stjórnvöld geta hvatt til þess að innlend grænmetisframleiðsla verði aukin og fylgt því eftir með hagrænum hvötum og stuðningsaðgerðum. Þær einstöku aðstæður sem við er að glíma um þessar mundir kalla á að gripið sé til framleiðsluhvetjandi aðgerða eins og til að mynda niðurgreiðslna á raforkuverði til grænmetisbænda, aukinna beingreiðslna eða sölutryggingar af einhverju tagi. Samkaup beina því til ráðherra að stjórnvöld og aðrir opinberir aðilar geri sitt til þess að innlendir framleiðendur geti sem best annað spurn eftir grænmeti á Íslandi,“ segir í bréfi Samkaupa.