Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Fréttir

Rödd unga fólksins býður ekki fram á næsta kjörtímabili – stefnir á endurkomu 2030
Sunnudagur 8. febrúar 2026 kl. 15:01

Rödd unga fólksins býður ekki fram á næsta kjörtímabili – stefnir á endurkomu 2030

Rödd unga fólksins, stjórnmálaafl ungs fólks í Grindavík, hefur tilkynnt að flokkurinn muni ekki bjóða sig fram í bæjarstjórn á næsta kjörtímabili. Þetta kemur fram í stöðufærslu sem birt var í dag.

Í færslunni segir að þótt langt sé síðan síðast hafi heyrst frá hópnum hafi hann ekki setið auðum höndum, heldur staðið saman og lagt sitt af mörkum í þeirri uppbyggingu sem hann var kosinn til að vinna að. Flokkurinn bauð sig fyrst fram í maí 2018 og er nú áttunda starfsári hans að ljúka.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Ástæðu ákvörðunarinnar rekja fulltrúar Raddar unga fólksins til breyttra aðstæðna í kjölfar þess að margir Grindvíkingar hafi þurft að setjast að víðs vegar um landið. „Eins og staðan er í dag hefur enginn okkar sem eftir stöndum raunhæfa möguleika á að halda áfram í bæjarstjórn og takast á við þá yfirgripsmiklu vinnu sem fram undan er,“ segir í færslunni.

Þrátt fyrir að ekki verði boðið fram á næsta kjörtímabili er tekið fram að flokkurinn sé ekki lagður niður. Rödd unga fólksins hyggst halda áfram starfi og stefnir á að koma sterk til baka í sveitastjórnarkosningum 2030, þá með nýtt ungt fólk í fararbroddi.

Jafnframt skorar hópurinn á þá flokka sem bjóða fram núna að tryggja ungu fólki sæti á listum sínum, enda skipti miklu að ungt fólk snúi aftur heim og taki þátt í uppbyggingu samfélagsins.

Í stöðufærslunni er einnig fjallað um að aðstæður á næsta kjörtímabili verði „ólíkar öllu sem áður hefur sést“ og að ágreiningsmál verði líklega fá þar sem markmiðið sé sameiginlegt: að Grindavík rísi upp á ný og verði aftur blómlegt samfélag, líkt og það var fyrir 10. nóvember 2023.

„Þetta var ekki auðveld ákvörðun, en hún er sú rétta við núverandi aðstæður,“ segir í lokin, þar sem fulltrúar flokksins nefna jafnframt að líf þeirra hafi tekið miklum breytingum og þörf sé á tíma til að sinna fjölskyldum og aðlögun að nýjum veruleika.

Færslunni lýkur með hvatningu: „Áfram Grindavík.“