Flugger
Flugger

Fréttir

Orkuverið í Svartsengi aftengt frá flutningskerfinu á fimmtudaginn
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
þriðjudaginn 28. nóvember 2023 kl. 15:03

Orkuverið í Svartsengi aftengt frá flutningskerfinu á fimmtudaginn

Grindavík keyrð á varaaflsvélum á meðan

Á fimmtudagsmorgun verða orkuverið í Svartsengi og Svartsengislína 1 tekin úr rekstri á meðan Landsnet reisir nýtt mastur við varnargarðinn sem verið er að reisa í kringum Svartsengi.  

 Á meðan mun Grindavíkurbær fá rafmagn frá þremur varaaflsvélum sem nú er verið að flytja til Grindavíkur og verða tengdar inn á veitukerfið á meðan á verkinu stendur. Vélarnar verða staðsettar á hafnarsvæðinu og geta annað 3,5 megavöttum sem eiga að geta séð Grindavík fyrir því rafmagni sem þörf er á.

Landsnet biður bæði fólk og fyrirtæki í Grindavík að takmarka orkunotkun þennan dag til að allt gangi að óskum. Að öðru leyti er ekki von á að notendur verði fyrir rafmagnstruflunum vegna aðgerðarinnar. Verkið hefst um kl. 08.00 og er reiknað með að það taki um tólf klukkutíma en verkið er unnið í góðu samstarfi við HS Orku og HS Veitur.

Ef til truflana kemur munu upplýsingar um þær birtast á www.landsnet.is , samfélagsmiðlum og í Landsnetsappinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024