Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Opinn kynningarfundur Isavia á umhverfismati þróunar og uppbyggingar á Keflavíkurflugvelli
Mánudagur 3. apríl 2023 kl. 14:00

Opinn kynningarfundur Isavia á umhverfismati þróunar og uppbyggingar á Keflavíkurflugvelli

í Hljómahöllinni mánudaginn 3. apríl kl. 20

Isavia býður til opins kynningarfundar um umhverfismat á áformum um þróun og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ mánudaginn 3. apríl næstkomandi kl. 20:00. Einnig verður beint streymi frá fundinum á vef Víkurfrétta. Auk umhverfismatsins verður farið yfir áform um framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli næstu tíu árin og þau markmið sem þeim er ætlað að ná.

Þær framkvæmdir sem Isavia áformar á Keflavíkurflugvelli á komandi árum hafa það markmið að bæta innviði og aðstöðu þannig að flugvöllurinn geti tryggt betri þjónustu og upplifum farþega. Áformin fela meðal annars í sér umtalsverða stækkun flugstöðvarbygginga, byggingu bílastæðahúss, bætta aðkomu að flugvellinum, nýtt svæði fyrir flugfrakt og umbætur sem munu auka skilvirkni núverandi tveggja flugbrauta. Framkvæmdirnar snúast þannig um að Keflavíkurflugvöllur geti með góðu móti tekið á móti þeim fjölda farþega sem farið hefur um völlinn þegar mest er og til að mæta  þeirri fjölgun farþega sem fyrirséð er að verði á næstu tíu árum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Allar framkvæmdir verða unnar í samræmi við sjálfbærnistefnu Isavia og verður uppbygging  flugvallarins vottuð af BREEAM, sem er alþjóðlegt vottunarkerfi fyrir sjálfbærni framkvæmda. Auk þess að draga úr umhverfisáhrifum þá er það mat Isavia að með því verði hægt að draga úr kostnaði á líftíma bygginga.

Umhverfismatsskýrslan hefur nú þegar verið birt til umsagnar á vef Skipulagsstofnunar og er frestur til að skila inn umsögnum til 2. maí næstkomandi. Hún er unnin að frumkvæði Isavia og fjallar um mat á umhverfisáhrifum áformaðra framkvæmda næstu tíu árin.

Isavia hvetur almenning og aðra hagaðila til að kynna sér efni umhverfismatsskýrslunnar. Skýrslan og upplýsingar um hvernig umsögnum um hana er skilað er að finna á vef Skipulagsstofnunar. Allar frekari upplýsingar um þróun Keflavíkurflugvallar er að finna á vefsíðunni www.kefplus.is.