Nýr rekstraraðili almenningssamgangna í Reykjanesbæ frá 1. ágúst
Frá og með 1. ágúst 2025 tekur GTS ehf við rekstri almenningssamgangna í Reykjanesbæ. Við þessa breytingu verða engar breytingar á leiðarkerfi eða tímaáætlunum – akstur og þjónusta halda áfram með sama fyrirkomulagi og áður.
Íbúar í Höfnum sem nýta sér pöntunarakstur skulu panta ferðir með sama fyrirvara og hingað til, í síma 894-2115.
GTS ehf verður með aðsetur að Flugvöllum 15 í Reykjanesbæ. Ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir má senda á netfangið [email protected].