Flugger
Flugger

Fréttir

Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga
Báturinn kominn að bryggju í Sandgerði snemma í morgun. VF/Hilmar Bragi
Fimmtudagur 16. maí 2024 kl. 09:02

Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga

Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga á þriðja tímanum í nótt. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá skipstjóra annars strandveiðibáts klukkan 02:42 þess efnis að bátur í grenndinni væri að sökkva um 6 sjómílur norðvestur af Garðskagavita.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á hæsta forgangi ásamt sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum. Þá voru nálæg fiskiskip og bátar beðin um að halda á staðinn.

Skömmu eftir að neyðarkallið barst Landhelgisgæslunni hafði tilkynnandi aftur samband og tjáði varðstjórum í stjórnstöð að hann væri búinn að bjarga manninum úr sjónum en bátsverjanum tókst að komast í björgunargalla áður en bátur hans sökk. Maðurinn var kaldur eftir veruna í sjónum og var ákveðið að sjúkrabíll biði hans á bryggjunni á Sandgerði. Sá sem bjargaði manninum sigldi með hann þangað.

Báturinn maraði í hálfu kafi og björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein dró bátinn til Sandgerðis. Þar er nú unnið að því að koma honum á þurrt.

Landhelgisgæslan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til skipstjóra strandveiðibátsins sem sýndi mikið snarræði við björgun mannsins og einnig til annarra viðbragðaðila sem brugðust við með skjótum og fumlausum hætti.








Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024