Loftlausar bæjarskrifstofur
Loftræsting aðeins í hluta rýma
Á fundi stjórnar Eignasjóðs Reykjanesbæjar þann 10. apríl var lögð fram tillaga um úrbætur á loftræstingu í skrifstofurýmum að Grænásbraut 910, þar sem bæjarskrifstofur sveitarfélagsins eru til húsa til bráðabirgða næstu misseri.
Samkvæmt fundargerð er loftræstibúnaður nú þegar til staðar í hluta húsnæðisins en nær eingöngu yfir þrjú skrifstofurými. Þar sem fjöldi starfsmanna í húsinu er mikill, þykir brýnt að skoða hvort ekki sé æskilegt að koma fyrir loftræstikerfi í fleiri rýmum til að bæta loftgæði og vinnuumhverfi.
Málið var lagt fram til umræðu og frekari úrvinnslu.