Fréttir

Landsbankinn aðeins opinn fyrir brýn erindi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 24. mars 2020 kl. 07:59

Landsbankinn aðeins opinn fyrir brýn erindi

Vegna herts samkomubanns og til að sporna gegn útbreiðslu Covid-19 geta viðskiptavinir aðeins fengið afgreiðslu í útibúi ef erindið er mjög brýnt og ekki er hægt að leysa úr því með öðrum hætti, þ.e. í sjálfsafgreiðslu eða með samtali við Þjónustuver. Til að fá afgreiðslu er nauðsynlegt að panta tíma fyrirfram. Breytingarnar taka gildi að morgni þriðjudagsins 24. mars 2020 og gilda þar til samkomubanni stjórnvalda verður aflétt.

Aðstæður í útibúum og afgreiðslum bankans eru mjög misjafnar og með því að takmarka heimsóknir í útibúin er betur hægt að uppfylla skilyrði samkomubannsins og gæta að öryggi viðskiptavina og starfsfólks. Um leið fjölgar starfsfólki sem getur svarað fyrirspurnum sem koma í gegnum síma, tölvupóst og netspjall.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Við hvetjum viðskiptavini til að óska aðeins eftir afgreiðslu í útibúi ef erindið er mikilvægt og ekki er hægt að leysa úr því með öðrum hætti, s.s. með stafrænum þjónustuleiðum bankans, Landsbankaappinu, í netbankanum eða með samtali við Þjónustuver, með tölvupósti eða með því að senda fyrirspurn í gegnum netspjallið á landsbankinn.is.

Ef ekki reynist mögulegt að afgreiða erindið með þessum hætti þarf að bóka símtal við ráðgjafa. Hægt er að bóka símtal á vef bankans, með því að hafa samband við Þjónustuver eða í gegnum netspjallið hér á vefnum. Afgreiðsla er aðeins veitt í útibúi ef tími hefur verið pantaður fyrirfram.