Flugger
Flugger

Fréttir

Heitt vatn og rafmagn í lagi í Grindavík og staða á innviðum víða góð
Holurnar geta leynst víða í Grindavík. VF/Jón Reynisson
Fimmtudagur 7. desember 2023 kl. 09:37

Heitt vatn og rafmagn í lagi í Grindavík og staða á innviðum víða góð

Mikil vinna hefur staðið yfir við að kanna stöðu innviða í Grindavík og ástand þeirra og eru margir að störfum víða um bæinn að sinna viðgerðum. Þá hafa fleiri fyrirtæki hafið rekstur að nýju en mörg þó ekki með fullum afköstum.

Unnið hefur verið að því að mynda fráveitulagnir í götum og gengur sú vinna vel. Notast er við þrjár myndavélar, þ.e. þrír hópar eru að mynda. Þær lagnir sem hafa verið myndaðar koma ágætlega út. Vesturstofn fráveitukerfisins fór illa í sprungu neðan við Kirkjustíg en viðgerð þar er lokið. Þá hefur verið staðið í smærri viðgerðum víða um bæ. Viðgerð á fráveitulögn við Austurveg er umfangsmikil, vonir standa til að viðgerð þar ljúki í næstu viku. Vinna við mælingar á hæð í brunnum fráveitunnar er hafin. Sú vinna skiptir máli til að fá fullvissu um sjálfrennsli.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Staðan á kalda vatninu er almennt nokkuð góð. Kalt vatn er á stórum hluta bæjarins en stefnt er að því að kalt vatn verði komið á allan bæinn strax eftir helgi. Mesta tjónið á vatnsveitunni er við Austurveg við Grindavíkurkirkju. Samhliða vinnu við lagnakerfið er unnið í lekaleit á kerfinu.  Íbúar eru hvattir til að nota ekki salerni, vaska, uppþvottavélar o.s.frv. í þeim húsum sem hafa kalt vatn þar til það verður staðfest að fráveitukerfið frá þeirra húsum er í lagi og skili skólpi sína leið til sjávar. Gatnalýsingin hefur haldið velli enn sem komið er, ljós er á staurum en þónokkrir þeirra eru skakkir.

Heitt vatn og rafmagn er á öllum bænum sem þjónað er af HS veitum. Stofnleiðir fjarskiptakerfa eru að mestu leyti í lagi, samkvæmt samtölum Grindavíkurbæjar við Mílu og Ljósleiðarann. Íbúar og fyrirtæki eru hvött til að setja sig í samband við þessa aðila ef heitt vatn, rafmagn og fjarskipti hjá þeim virka ekki sem skyldi.

Framkvæmdir við það að fylla í sprungur og holur eru hafnar, en þessar framkvæmdir eru mikilvægar til að tryggja öryggi íbúa, starfsmanna fyrirtækja, viðbragðsaðila og annara aðila á ferð sinni um bæinn. Hver og ein sprunga verður gengin, skrásett og fyllt. Þeir sem hafa ábendingar um sprungur og/eða holur t.d. á lóðum sínum er bent á að tilkynna þær á [email protected]


Reikningar felldir niður

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að fella húsaleigureikninga og reikninga vegna þjónustugjalda Grindavíkurbæjar vegna nóvember 2023.

Niðurfellingin verður framkvæmd eins fljótt og kostur er og mun þá krafan falla út í heimabanka viðkomandi. Ef búið er að greiða þá myndast inneign í viðskiptamannabókhaldi bæjarins og er hægt að fá þá inneign endurgreidda.  Ósk um endurgreiðslu er hægt að senda á [email protected]

Ekki verða sendir út húsaleigu- eða þjónustureikningar frá Grindavíkurbæ meðan þetta ástand varir.