Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Háskólalestin í Grindavík
Miðvikudagur 11. maí 2022 kl. 17:01

Háskólalestin í Grindavík

Háskólalest Háskóla Íslands heimsækir sinn annan áfangastað þetta árið dagana 12.-14. maí en þá verður stoppað í Grindavík þar sem í boði verður fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Haldnar verða kennarasmiðjur og námskeið fyrir grunnskólanemendur dagana 12. og 13. maí en dagskránni lýkur svo með sannkallaðri vísindaveislu fyrir allt samfélagið í Kviku, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur, laugardaginn 14.maí kl. 12-16. Þar býðst fólki á öllum aldri að kynnast undrum vísindanna með gagnvirkum og lifandi hætti í gegnum fjölbreytt tæki, tól og smiðjur. Veislan er öllum opin og enginn aðgangseyrir.

Megináherslan í starfi Háskólalestarinnar er á að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki, styðja við starf grunnskólanna og efla tengsl við landsmenn á öllum aldri. Í áhöfn lestarinnar eru kennarar og nemendur við Háskóla Íslands, sem flestir hverjir eru líka leiðbeinendur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla unga fólksins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Föstudaginn 13. maí mun nemendum í 9. og 10. bekk í Grunnskólanum í Grindavík bjóðast að sækja afar fjölbreytt námskeið. Þar verður fjallað um eldfjöll, töfra ljóss og lita, orkuskipti, vindmyllur, efnafræði, forritun með skynjurum og föndri, sjúkraþjálfun, dulkóðun og japanska menningarheima.

Auk námskeiðanna fyrir unga fólkið býður Háskólalestin upp á nýjung fimmtudaginn 12. maí en það eru sérstakar kennarasmiðjur fyrir alla kennara á Suðurnesjum. Vísindasmiðja Háskóla Íslands, sem er til húsa í Háskólabíói, hefur undanfarin ár boðið kennurum í fjölbreyttar smiðjur með áherslu á verklega fræðslu og tilraunir. Mikil eftirspurn hefur verið eftir endurmenntun af þessu tagi og nú verða valdar smiðjur í boði fyrir kennara á landsbyggðinni. Stefnt er á að gera þessa þjónustu að föstum lið í Háskólalestinni. 

Háskólestin hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða um allt land frá árinu 2011 og fengið einstaklega hlýjar móttökur hvert sem komið er. Það er því alltaf mikið tilhlökkunarefni að hefja ferðina ár hvert með fjölbreytta fræðslu en allt starf lestarinnar er skipulagt í nánu samstarfi við sveitarfélög og skóla hvers áfangastaðar.