Grindavík stígur markviss skref að endurreisn: „Engin hliðstæða á Íslandi“
Unnið er að nýju og lifandi áhættumati sem miðar að því að opna Grindavík jafnt og þétt. Bæjarstjóri segir samstöðu og samvinnu í brennidepli í umfangsmiklu verkefni sem færa á bæinn frá neyðarviðbragði yfir í fyrirsjáanleika.
Pétur G. Markan, bæjarstjóri í Grindavík, segir gríðarmikla vinnu standa yfir dag og nótt við að móta nýja aðferðafræði við áhættumat fyrir þéttbýlið í bænum. Markmiðið er að færa samfélagið frá neyðarástandi yfir í stýrða og áfallaþolna sambúð við náttúruöflin. Þetta kemur fram í kveðju sem bæjarstjórinn beindi til Grindvíkinga og samstarfsfólks í aðdraganda verslunarmannahelgarinnar á vef bæjarins.
Frá neyðarástandi til fyrirsjáanlegrar framtíðar
Að sögn Péturs felst verkefnið í því að innleiða áhættumiðaða ákvarðanatöku sem á sér engin fordæmi hér á landi. Stefnt er að því að opna bæinn í skrefum og gera búsetu sem og atvinnulíf öruggara og fyrirsjáanlegra.
„Markmiðið er; lítil og örugg, en markviss skref að endurreisn,“ segir Pétur í pistli sínum.
Breiður hópur sérfræðinga leggur hönd á plóg
Fjórir vinnuhópar hafa starfað undanfarnar vikur að því að rýna í allar grunnstoðir samfélagsins. Þar undir falla meðal annars öryggi innviða, skólahald, búseta og skipulag rýmingar og endurkomu. Þó að ábyrgð á nýju áhættumati verði að endingu hjá heimamönnum, segir Pétur það dýrmætt að Grindavík standi ekki ein í þessari flóknu vinnu.
Bærinn nýtur aðstoðar fjölda fagaðila. Meðal þeirra sem koma að vinnunni eru:
-
Vísindamenn frá Háskóla Íslands og verkfræðingar.
-
Fulltrúar lögreglu, slökkviliðs og Almannavarna.
-
Sérfræðingar frá ráðuneytum.
-
Fulltrúar frá fasteignafélaginu Þórkötlu, Unicef og Farsældarráði Suðurnesja.
Þá byggir vinnan einnig á ráðgjöf og skýrslu sérfræðinga frá Alþjóðabankanum, sem koma með dýrmæta reynslu af viðbrögðum við svipuðum hamförum á alþjóðavettvangi.
Næstu skref kynnt fljótlega
Þrátt fyrir að frí sé gert yfir verslunarmannahelgina verður þráðurinn tekinn upp að nýju strax á þriðjudag. Þá hefst vinna við að fínstilla vísa og mótvægisaðgerðir nýja áhættumatsins.
Stefnan er sett á að kynna stöðu áhættumatsins og næstu skref fyrir íbúum og fjölmiðlum eins fljótt og auðið er, þá sérstaklega hvað varðar skóla- og húsnæðismál fram undan.
Pétur lýkur pistli sínum á að lofa þá seiglu, jákvæðni og fagmennsku sem einkennir alla sem að verkefninu koma og vonast til að vinnan skapi fordæmi sem nýst geti um land allt, áður en hann óskar landsmönnum gleðilegrar og öruggrar verslunarmannahelgar.








