Flugger
Flugger

Fréttir

Grindavík opin frá sjö að morgni til fimm síðdegis
Frá Grindavík. VF/JPK
Þriðjudagur 28. nóvember 2023 kl. 09:33

Grindavík opin frá sjö að morgni til fimm síðdegis

Hættumatskort sem Veðurstofan gaf út 22. nóvember 2023 er enn í gildi.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að rýmka þann tíma sem Grindvíkingar hafa til þess að huga að eigum sínum i Grindavíkurbæ.   Á það jafnframt við um þá sem reka þar atvinnustarfsemi.   Lokanir verða áfram á Grindavíkurvegi, Suðurstrandarvegi og á Nesvegi.  Leiðin inn og út úr Grindavík er sem fyrr um Suðurstrandarveg og Nesveg.  Grindavíkurvegur verður áfram lokaður.   Opið verður fyrir íbúa og þá sem reka atvinnustarfsemi í bænum frá kl. 7 á morgnana til kl. 17 síðdegis.   Unnið er að því að meta stöðu á lagnakerfi bæjarins.  Fyrirtæki geta hafið rekstur þar sem lagnakerfi eru í lagi á framangreindu tímabili.  Það getur til að mynda átt við um mörg fyrirtæki á hafnarsvæði Grindavíkur.   Eigendur fyrirtækja þurfa að huga að þessu sérstaklega áður en starfsemi getur hafist á ný.  Þeir hafi eigin viðbragðsáætlanir klárar fyrir sitt fólk.  Fjölmiðlar hafa aðgang að Grindavík á sama tíma.  Íbúum og starfsmönnum fyrirtækja verður ekki  fylgt inn á svæðið en björgunarsveitir verða í viðbragðsstöðu víða um bæinn.  Bærinn verður svo rýmdur eftir kl. 17 daglega.  Óviðkomandi er bannaður aðgangur.  Bílar verða taldir inn og út af svæðinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ákveðið var að færa almannavarnastig á hættustig fimmtudaginn 23. nóvember sl.  

Talið er að líkur á skyndilegri gosopnun innan bæjarmarka Grindavíkur séu litlar.  Land rís enn í Svartsengi og kvika þar gæti flætt á ný um kvikuganginn undir Grindavík.   Áfram eru því taldar líkur á eldgosi á svæðinu yfir kvikuganginum. 

Komi til rýmingar vegna hættuástands munu viðbragðsaðilar gefa það til kynna með hljóðmerkjum og ljósmerkjum.   Ekið er úr bænum eftir Suðurstrandarvegi eða Nesvegi.

Til athugunar fyrir þá sem fara inn í bæinn:

  • Íbúar í Grindavík þurfa ekki að skrá sig til að komast inn í bæinn. Bílar eru taldir inn og út af svæðinu.
  • Grindavík er lokuð fyrir öllum öðrum en íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.
  • Grindavíkurvegur er lokaður.  
  • Mælst er til þess að fólk komi á eigin bílum.  Ekki er æskilegt að börn séu tekin með en sprungur geta reynst viðsjárverðar. 
  • Frárennslislagnir liggja undir skemmtum og rennandi vatn er af skornum skammti þannig að víða er ekki hægt að nota salerni í húsum.
  • Mælt er með að fólk komi með vatn og önnur matföng fyrir daginn því ekki er hægt að nálgast slíkt í bænum.
  • Hafa ber í huga að hús gætu verið ótrygg. Hægt er að hafa samband við viðbragðsaðila á staðnum.
  • Eigendur húsa eru hvattir til þess að koma kyndingu í lag en von er á kólnandi veðri á næstunni.
  • Iðnaðarmenn og íbúar verða að störfum í húsum þar sem hitaveita er ekki í lagi.
  • Mikilvægt er að þeir sem fara til Grindavíkur fylgi tilmælum viðbragðsaðila.