Fréttir

Gosstöðvar opna kl. 6 að morgni ef  viðrar - Grindvíkingar gefa út bæjarkort
Miðvikudagur 31. mars 2021 kl. 10:54

Gosstöðvar opna kl. 6 að morgni ef viðrar - Grindvíkingar gefa út bæjarkort

Opnað verður fyrir umferð að gosstöðvum kl. 6 að morgni fram yfir páska, að því gefnu að það viðri vel til útivistar.
Með hliðsjón af reynslu síðustu daga verður lokað fyrir alla umferð að gosstöðvum kl. 18 eða fyrr ef nauðsyn krefur. Viðbragðsaðilar munu hefja rýmingu á gossvæði kl. 22.
Aðeins blaða- fréttamönnum og vísindamönnum er hleypt inn á vegslóða viðbragðsaðila að gosstöðvum en öðrum ekki.
Til og með 5. apríl 2021 verður opnað fyrir umferð kl. 6 og lokað fyrir umferð kl. 18. Fyrirkomulag er háð veðri og aðstæðum á svæðinu á hverjum tíma.
Í gær náði bílalest inn á Grindavíkurveg sem er fjarri eldstöðvum. Bannað er að stöðva og leggja ökutækjum á eða við Grindavíkurveg. Fjarstæðukennt er fyrir flesta að hefja gosgöngu í Grindavík. Ef í óefni stefnir eins og í gær mun lögregla verða með lokunarpósta við vegamót Reykjanesbrautar og Grindavíkurvegar, gatnamót Suðurstrandarvegar og Krýsuvíkurvegar. Eins verður lokunarpóstur inn á Krýsuvíkurveg.
Viðbragðsaðilar stefna að því að ljúka störfum fyrir miðnætti á framangreindu tímabili.
Gríðarlegur fjöldi hefur nú þegar komið inn í Geldingadali. Í gildi er reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Markmið með reglugerðinni er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins. Þannig er í gildi takmörkun á samkomum til 15. apríl 2021. Fjöldasamkomur eru óheimilar til sama tíma. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en tíu einstaklingar koma saman. Nota skal andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun. Sóttvarnalæknir hefur hvatt fólk til að sitja heima, segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum.

Grindvíkingar hafa útbúið bæjarkort  þar sem finna má bílastæði og hvar hópbílar gætu stoppað til að ferja fólk að gönguleiðinni. Við minnum á að salernisaðstaða er opin í íþróttamiðstöðinni frá 9:00 - 21:00 nema á föstudaginn langa og páskadag. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Á Visit Grindavík en þar er t.d. að finna veitingastaði og aðrar verslanir í Grindavík. Þá er opið í sundlauginni næstu daga nema föstudaginn langa og páskadag.