Fjögur skemmtiferðaskip komu til Keflavíkur
Alls komu fjögur skemmtiferðaskip til Keflavíkurhafnar í sumar og var heildarfarþegafjöldi sem með þeim kom 822 farþegar af 26 þjóðernum.
Farið yfir framkvæmd móttöku þeirra skemmtiferðaskipa sem komu til Keflavíkurhafnar í sumar á fundi Atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar 24. september.
Ráðið lýsir ánægju sinni með hvað vel hefur tekist til við móttöku þeirra skemmtiferðaskipa sem komu til Keflavíkur og vonar að þetta sé aðeins smjörþefurinn af því sem koma skal. Þessi vegferð að markaðssetja Keflavíkurhöfn fyrir smærri skemmtiferðaskip hófst árið 2019 og er langhlaup sem vonandi skilar nýjum tækifærum til atvinnuuppbyggingar í móttöku ferðamanna í sveitarfélaginu til lengri tíma litið, segir í fundargerð ráðsins.