Fréttir

Finnur Beck settur forstjóri HS Orku hf. tímabundið
Föstudagur 4. október 2019 kl. 15:12

Finnur Beck settur forstjóri HS Orku hf. tímabundið

Stjórn HS Orku hf. hefur að ósk fráfarandi forstjóra gert samkomulag um að flýta áður ákveðnum starfslokum og hefur hann látið af störfum.

Stjórn HS Orku hf. hefur falið Finni Beck, lögfræðingi félagsins, að gegna stöðu forstjóra tímabundið þar til nýr hefur verður ráðinn. Staða forstjóra HS Orku var sem kunnugt er auglýst til umsóknar í byrjun september. Ráðningarferli stendur yfir og er gert ráð fyrir að því ljúki á næstu vikum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ásgeir Margeirsson, fráfarandi forstjóri, óskaði eftir að flýta áður ákveðnum starfslokum og lét hann formlega af störfum í vikunni.

Finnur Beck hefur starfað sem aðallögfræðingur HS Orku frá árinu 2015 en var þar áður starfandi héraðsdómslögmaður og einn eigenda á Landslögum lögmannsstofu. Finnur útskrifaðist með ML gráðu úr lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 en hann er jafnframt með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.