Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Fannar fékk riddarakross á Bessastöðum
Orðuhafar ásamt forsetahjónunum. Mynd af vef forseta Íslands.
Mánudagur 17. júní 2024 kl. 16:58

Fannar fékk riddarakross á Bessastöðum

Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, var á meðal sextán Íslendinga sem sæmdir voru heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu í dag, 17. júní, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Í dag er 80 ára afmæli lýðveldisins Íslands.

Þau sem hlutu riddarakross í dag eru:

Bílakjarninn
Bílakjarninn

1. Dísella Lárusdóttir óperusöngkona, riddarakross fyrir framlag til sönglistar.

2. Eiríkur Jónsson yfirlæknir, riddarakross fyrir framlag til þvagfæraskurðlækninga og heilbrigðisþjónustu.

3. Fannar Jónasson bæjarstjóri, riddarakross fyrir þjónustu í þágu samfélagsins á tímum hamfara.

4. Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskeri og sagnfræðingur, riddarakross fyrir rannsóknir, miðlun og varðveislu menningar sem tenjast íslenskum þjóðbúningum.

5. Jóna Dóra Karlsdóttir, stofnandi og fyrrverandi formaður Nýrrar dögunar, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf til stuðnings syrgjendum og fyrir að stuðla að opinni umræðu um sorg og sorgarviðbrögð.

6. Margrét Vilborg Bjarnadóttir, verkfræðingur og stofnandi PayAnalytics, riddarakross fyrir framlag til nýsköpunar á sviði hugbúnaðar í þágu jafnlaunastefnu.

7. Margrét Tómasdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi skátahöfðingi, riddarakross fyrir störf í þágu skátahreyfingarinnar.

8. Ómar Einarsson, fyrrverandi sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg, riddarakross fyrir framlag og frumkvæði í íþrótta-, tómstunda- og velferðarmálum.

9. Rósa Björk Barkardóttir sameindalíffræðingur, riddarakross fyrir framlag til vísinda og krabbameinsrannsókna.

10. Sigrún Steinarsdóttir Ellertsen, stofnandi og umsjónarmaður Matargjafa, riddarakross fyrir framlag til mannúðarmála í heimabyggð.

11. Stefán Baldvin Sigurðsson, fyrrverandi háskólarektor, riddarakross fyrir störf í þágu menntunar, vísinda og félagsmála.

12. Svanur Ingvarsson, kennari og húsasmíðameistari, riddarakross fyrir framlag í þágu íþróttastarfs fatlaðra.

13. Þorvaldur Jónsson bóndi, riddarakross fyrir félags- og menningarstörf í héraði.

14. Þór Sigfússon, stofnandi Sjávarklasans, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf og nýsköpun á vettvangi sjávarútvegs.

15. Þórey S. Kemp Guðmundsdóttir íþróttakennari, riddarakross fyrir framlag til íþróttaiðkunar kvenna og heilsueflingar aldraðra.

16. Þórhallur Sigurðsson, leikari og leikstjóri, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar og brautryðjendastarf í barnaleikhúsi.