Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Fámennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum stöðvar orkuskipti á Suðurnesjum
Laugardagur 3. apríl 2021 kl. 07:23

Fámennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum stöðvar orkuskipti á Suðurnesjum

„Á miðvikudag hafnaði bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga að veita framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 en áður höfðu sveitarfélögin Reykjanesbær, Hafnarfjörður og Grindavík samþykkt umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi með atkvæðum allra bæjarfulltrúa sveitarfélaganna þriggja. Enn á ný er þetta mikilvæga öryggis og framfaramál fyrir Suðurnes komið á byrjunarreit og finnst flestum nóg um eftir sautján ára þrautagöngu,“ sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, á Alþingi í síðustu viku.

„Fámennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum stöðvar með þessu orkuskipti á Suðurnesjum, eykur óvissu í afhendingaröryggi og flutningsgetu raforku fyrir atvinnulíf og heimilin á svæði þar sem mesta atvinnuleysið í landinu hrjáir samfélagið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í ljósi alls þessa og þeirra náttúruhamfara sem eru í gangi á Reykjanesi er aðkallandi að málið verði klárað á þessu þingi til þess að koma í veg fyrir frekari tafir málsins og flýta því að framkvæmdir geti hafist.

Ég mælti fyrir frumvarpinu um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2 og gekk það til umhverfis- og samgöngunefndar að lokinni 1. umræðu þann 3. mars síðastliðinn. Með frumvarpinu yrði skipulagsvaldið með framkvæmd Suðurnesjalínu 2 til Landsnets flutt frá sveitarfélögunum til löggjafans. Það er aðkallandi að skipulagsvald mikilvægra innviða í landinu verði tekið á æðra stjórnsýslustigi svo eitt sveitarfélag geti ekki komið í veg fyrir eðlilega uppbyggingu mikilvægra innviða fyrir einstaka landshluta eða landið allt.

Markmið framkvæmdarinnar er að auka afhendingaröryggi og flutningsgetu en framkvæmdin er mikilvæg fyrir meginflutningskerfið og tengingu milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Samkvæmt skýrslu orkuspárnefndar, raforkuspá 2018–2050, og framtíðaráætlunum sveitarfélaga á Suðurnesjum, mun eftirspurn eftir raforku aukast hraðar þar en annars staðar á landinu. Stafar það m.a. af áformum um aukna raforkunotkun gagnavera á Suðurnesjum, auknum umsvifum á Keflavíkurflugvelli og örari fólksfjölgun.

Suðurnesjalína 2 er framkvæmd sem er mikilvæg út frá þjóðarhagsmunum og því þarf ekki að fjölyrða um brýna nauðsyn þess að ráðast í hana. Óviðunandi töf hefur nú þegar orðið á málinu sem hefur velkst í kerfinu árum saman.“