Fréttir

Fagna grænum iðnaði í Bergvík
Reykjanesklasinn verður í þessu húsnæði við Bergvík í landi Suðurnesjabæjar.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 10. mars 2023 kl. 07:15

Fagna grænum iðnaði í Bergvík

Suðurnesjabær býður Reykjanesklasann velkominn í Suðurnesja-bæ, þar sem byggingar klasans eru staðsettar á iðnaðarsvæði innan sveitarfélagamarka Suðurnesjabæjar sem í skipulagi hefur fengið nafnið Bergvík.

„Undirbúningur verkefnisins hefur verið í fullu samstarfi við Suðurnesjabæ undanfarnar vikur og það er mjög ánægjulegt að þessum áfanga sé náð. Þau mannvirki sem byggð voru upp fyrir álbræðslu hafa staðið ókláruð og ónotuð árum saman. Nú er unnið að því að í stað álbræðslu verði þar starfræktur Grænn iðngarður, sem samkvæmt markmiðum Reykjanesklasans verður stórt og mikið nýsköpunar- og frumkvöðlasetur. Fyrirmyndin er Sjávarklasinn á Granda í Reykjavík og sú hugmyndafræði um klasastarfsemi sem þar hefur verið þróuð og starfsemin þar hefur skilað eftirtektarverðum árangri,“ segir á heimasíðu Suðurnesjabæjar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þá segir einnig: „Það eru sannarlega spennandi tímar framundan. Um er að ræða mjög metnaðarfullt verkefni sem byggir á hugmyndafræði um klasastarfsemi, sem hefur sannað sig hjá Sjávarklasanum.  Það verður áhugavert að fylgjast með framgangi málsins og Suðurnesjabær óskar Reykjanesklasanum og þeirri starfsemi sem þar mun verða velgengni í komandi framtíð.“