Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Bláa lónið og Hjá Höllu  fengu þjónustuverðlaun Keflavíkurflugvallar
Halla Svansdóttir, veitingakona úr Grindavík tekur við viðurkenningunni.
Miðvikudagur 2. desember 2020 kl. 17:00

Bláa lónið og Hjá Höllu fengu þjónustuverðlaun Keflavíkurflugvallar

Þjónustuverðlaun Keflavíkurflugvallar fyrir árið 2019 voru afhent nýverið. Að þessu sinni hlýtur Bláa lónið þjónustuverðlaun verslana og Hjá Höllu fær þjónustuverðlaun veitingastaða. Niðurstaðan nú, sem og áður, byggir á markaðsrannsóknum og könnunum sem gerðar eru á Keflavíkurflugvelli.

Public deli
Public deli

Isavia hefur á undanförnum árum veitt rekstraraðilum á Keflavíkurflugvelli verðlaun fyrir þá framúrskarandi þjónustu sem þeir veita. Veitingastaðir og verslanir fá verðlaun fyrir að skara fram úr í þjónustu við farþega sem fara um flugvöllinn.

Horft er til þess hvort vörur og upplýsingar um verð séu aðgengilegar og litið til þess hvernig afgreiðslufólk nálgast viðskiptavini.

Isavia leggur mikla áherslu á góða þjónustu við ferðafólk. Rekstraraðilar, sem eru í beinum tengslum við farþega sem fara um flugstöðina, eru hvattir til að tryggja sem besta þjónustu. Liður í því eru sérstök þjónustunámskeið og verðlaun sem veitt eru fyrir vel unnin störf.

Fulltrúar Bláa Lónsins tóku við viðurkenningunni.