Fréttir

Björgunarsveitir lokið störfum við gosstöðvarnar
Föstudagur 2. september 2022 kl. 14:41

Björgunarsveitir lokið störfum við gosstöðvarnar

Björgunarsveitir hafa lokið gæslustörfum á gosstöðvunum í Meradölum, en bregðast við að vanda í neyðartilvikum. Tvö teymi lögreglumanna og sjúkraflutningamanns eru á svæðinu og hafa getað sinnt því sem þarf. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu frá Almannavörnum.

Áætlað er að landverðir frá Umhverfisstofnun hefji störf eftir helgina. Gestafjöldi hefur haldist stöðugur undanfarna viku og 1000-1500 gestir heimsækja gosstöðvarnar daglega.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Gosórói mælist ekki á Reykjanesskaga og önnur virkni er lítil á svæðinu. Unnið er á hættustigi Almannavarna og staðan verður endurmetin í næstu viku.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur minnt á að óheimilt er að ganga á hrauninu og vísar þar bæði í almannavarnalög og lög um náttúruvernd. Eldhraun og eldvörp njóta sérstakrar verndar laga um náttúruvernd. Þrátt fyrir að hraun virðist hafa kólnað þá er enn hætta á miklum hita undir efsta lagi. Yfirborð hraunsins er ótraust og hvassar brúnir þess geta skorið fólk illa.