Áframhaldandi landris í Svartsengi
Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi. Þó heldur áfram að draga jafnt og þétt úr hraða kvikusöfnunarinnar sé miðað við hraðann í apríl og fyrri hluta maí. Ef kvikusöfnun heldur áfram á svipuðum hraða og undanfarnar vikur má áfram gera ráð fyrir því að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi fari að aukast þegar líða fer á haustið. Breytingar á hraða landriss, og þar með kvikusöfnunar undir Svartsengi, geta þó haft áhrif á þetta mat. Þetta kemur fram í tilkynningu Veðurstofu Íslands.
Undanfarna hafa daga hafa mælst á bilinu 10 til 20 smáskjálftar á hverjum degi á svæðinu í kringum kvikuganginn sem myndaðist þann 1. apríl 2025. Jafnt og þétt hefur dregið úr virkninni síðustu vikur.
Skjálftarnir eru flestir í tveimur þyrpingum annars vegar sunnarlega á kvikuganginum nærri Grindavík og hinsvegar á svæðinu milli Sundhnúks og Stóra Skógfell. Einnig mælast stöku skjálftar við nyrðri enda gangsins norðan við Keili.
Hættumat hefur verið uppfært og helst óbreytt og gildir til 18. júní að öllu óbreyttu.