Fréttir

400 sprengjusérfræðingar æfa viðbrögð við hryðjuverkum
Mánudagur 26. september 2022 kl. 13:30

400 sprengjusérfræðingar æfa viðbrögð við hryðjuverkum

Um 400 sprengjusérfræðingar frá 14 löndum eru staddir hér á landi vegna Northern Challenge sem er árleg æfing sprengjusérfræðinga. Um er að ræða alþjóðlega æfingu Atlantshafsbandalagsins sem séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar skipuleggur.

Á æfingunni eru viðbrögð við hryðjuverkum æfð með því að veita þátttakendum færi á að aftengja samskonar sprengjur og fundist hafa víða um heim. Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem Northern Challenge er haldin. Æfingin fer að mestu leyti fram innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli en einnig í Helguvík og í Hafnarfirði.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sérhæfð stjórnstöð hefur jafnframt verið sett upp á öryggissvæðinu vegna æfingarinnar en það er í samræmi við alþjóðlegt vinnulag Atlantshafsbandalagsins.

Æfingin veitir sprengjusérfræðingum, sem koma hvaðanæva að úr heiminum, einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla reynslu og þekkingu sinni til annarra liða. Northern Challenge hefur notið vinsælda á undanförnum árum og hefur skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga innan Atlantshafsbandalagsins. Æfingunni lýkur 7. október.