Tími alvöru breytinga í Reykjanesbæ – Tækifærið er núna
Tími alvöru breytinga í Reykjanesbæ
– Tækifærið er núna
Við viljum sjá Reykjanesbæ
gera miklu betur
Við höfum báðir búið í Reykjanesbær um árabil og fylgst með bænum okkar vaxa og þróast. Við vitum hversu mikil tækifæri eru hér og þess vegna finnst okkur erfitt að horfa upp á hvað þau virðast of fara forgörðum.
Við eigum öflugt samfélag, gott fólk og einstaka staðsetningu. Samt sem áður höfum við ítrekað heyrt frá íbúum og fyrirtækjum sem upplifa að kerfið sé þungt, ákvarðanir taki of langan tíma og að rödd fólksins skiptir ekki nægu máli.
Þetta á ekki að vera svona.
Við fórum í framboð fyrir Miðflokkinn vegna þess að við trúum því að hægt sé að gera betur og að það þurfi fólk sem er tilbúið að segja það upphátt og fylgja því eftir í verki. Miðflokkurinn býður ekki upp á innantóm og falleg loforð. Við bjóðum upp á skýra stefnu, ábyrgð og vilja til að taka erfiðar og nauðsynlegar ákvarðanir, eitthvað sem hefur skort í Reykjanesbæ undanfarin ár. Við þorum að segja hlutina eins og þeir eru.
Fjölskyldur hafa setið á hakanum
Það er einföld staðreynd:
Fjölskyldur í bænum hafa ekki fengið þann stuðning sem þær eiga skilið.
Leikskólapláss skortir, þrátt fyrir að núverandi meirihluti fullyrði að öll börn komas inn á leikskóla við átján mánaða aldur, en staðreyndin virðist vera allt önnur.
Álag á starfsfólk í skólum er gríðarlega mikið og foreldrar standa of oft einir eftir þegar fæðingarorlofi lýkur. Kennarar og starfsfólk grunn- og leikskóla munu finna fyrir því ef Miðflokkurinn kemst í meirihluta því það mun minnka álag og starfsánægja aukast.
Þetta er ekki óleysanlegt vandamál, þetta er spurning um forgang.
Við munum m.a. ...
... tryggja leikskólapláss frá fjórtán mánaða aldri
... tryggja valfrjálsar heimgreiðslur allt að 250.000 kr. til foreldra þegar fæðingarorlofi lýkur
... bæta starfsaðstæður og draga úr álagi í skólum
... setja raunverulegan stuðning við foreldra í forgang
Ef vilji er fyrir hendi, þá er þetta hægt.
Atvinnulífið kæft í kerfinu
Reykjanesbær er í lykilstöðu sem hægt væri að nýta mun betur. Fyrirtæki mæta flóknum reglum, ófyrirsjáanlegu umhverfi og skorti á skýrri stefnu sem drepur frumkvæði.
Við eigum að nýta tækifærin
Það sem hefur komið okkur mest á óvart er hversu illa við nýtum stöðuna okkar. Nálægðin við flugvöllinn og þau tækifæri sem fylgja ættu að gera Reykjanesbæ að einum öflugasta bæ landsins. Við þurfum að virkja nýsköpun og vera sveigjanleg.
Þess í stað höfum við heyrt frá fólki í atvinnulífinu sem rekst á endalausar hindranir og flókið kerfi sem er oft unnið eftir geðþóttaákvörðunum starfsmanna.
Við teljum að þessu sé hægt að breyta með einfaldari reglum, skýrari stefnu og raunverulegum stuðningi við þá sem vilja skapa störf og verðmæti.
Við ætlum að snúa þessu við:
Einfalda kerfið
Lækka álögur þar sem svigrúm er til
Opna á raunveruleg tækifæri til uppbyggingar
Það er kominn tími til að hætta að tala um möguleika og byrja að nýta þá.
Sóun og ábyrgðarleysi í rekstri
Við teljum að flestir íbúar séu sammála um að það eigi að fara vel með peningana okkar. Því viljum við að reka bæinn af fagmennsku, með viðmiðum sem þekkjast í vel reknum fyrirtækjum. Þegar árangur næst þá munum við geta lækkað útsvar í samræmi við skuldastöðu og rekstrarafkomu bæjarins.
Við segjum þetta skýrt:
Setjum aga í reksturinn
Betri yfirsýn í fjármálum
Skýrari forgangsröðun í þágu íbúa
Bæta ferla og vinnu við fjárhagsáætlanir og stýringu verklegra framkvæmda
Stefna á að Reykjanesbær taki yfir starfsemi Kadeco
Tryggjum að fé fari í grunnþjónustu, ekki gæluverkefni og hælisleitendur
Skipulagsmál fyrir verktaka
– ekki íbúa
Of oft hefur uppbygging í bænum tekið mið af hagsmunum fárra í stað heildarinnar. Íbúar eiga ekki að standa hjá á meðan ákvarðanir eru teknar yfir höfuð þeirra. Gott dæmi um það eru ákvarðanir um uppbyggingu þéttrar fjölbýlishúsabyggðar á Akademíureitnum sem mjög margir íbúar eru andvígir.
Við krefjumst ...
... raunverulegs íbúalýðræðis
... skipulags sem þjónar fjölskyldum
... skýrrar framtíðarsýnar
Innviðir undir álagi – og ekkert gert
Bærinn vex, en innviðir halda ekki í við þróunina. Skólar, íþróttaaðstaða og grunnþjónusta eru undir auknu álagi.
Þetta er fyrirsjáanlegt vandamál og því óafsakanlegt að það sé ekki leyst.
Við ætlum að byggja upp ...
... öfluga innviði sem standast vöxt
... aðstöðu sem þjónar öllum aldurshópum
... samfélag þar sem fólk finnur fyrir öryggi
Hælisleitendamál
– ábyrgð verður að vera skýr
Það er óásættanlegt að einstök sveitarfélög beri óskýra og þunga byrði án þess að hafa raunverulegt aðkomuvald. Við vitum að þetta er viðkvæmt mál og skoðanir skiptar. Okkur finnst hins vegar mikilvægt að ræða það af hreinskilni enda þorum við að segja hlutina eins og þeir eru.
Að okkar mati þarf ábyrgðin að vera skýr. Það er ekki sanngjarnt að sveitarfélag eins og Reykjanesbær beri þunga byrði án þess að hafa raunverulegt aðkomuvald eða fullnægjandi stuðning. Við viljum sjá lausnir sem taka mið af bæði hagsmunum íbúa og ábyrgð ríkisins.
Í þessu sambandi þá er rétt að nefna það að frá árinu 2023 til og með árinu 2025 þá fengu alls 2.203 einstaklingar frjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ. Alls voru 406 einstaklingar íslenskir ríkisborgarar, 206 einstaklingar ríkisborgarar frá EES/EFTA ríkjum og 1.591 einstaklingur frá löndum utan EES/EFTA.
Kostnaður Reykjanesbæjar við þá 1.591 einstaklinga sem koma frá löndum utan EES/EFTA á þessu tímabili skv. upplýsingum frá Reykjanesbæ var 838.197.471 krónur á þessu þriggja ára tímabili.
Afstaða okkar er skýr:
Reykjanesbær á ekki að bera þennan kostnað
Ákvarðanir eiga ekki að vera teknar án samráðs við íbúa
Öryggi og traust íbúa verður að vera í forgangi
Þetta snýst ekki um tilfinningar, þetta snýst um ábyrgð og sanngirni.
Kyrrstaða er val – breytingar líka
Fyrir hverjar kosningar heyrum við sömu loforðin. Samt heldur sama mynstrið áfram.
Kyrrstaða er ekki tilviljun. Hún er afleiðing þess að kjósa það sama aftur og aftur.
Ef íbúar vilja raunverulegar breytingar, þá þarf að kjósa þær.
Miðflokkurinn er ekki hluti af gamla kerfinu í Reykjanesbæ.
Við erum tilbúin að taka ábyrgð, taka ákvarðanir og snúa þróuninni við.
Af hverju við bjóðum okkur fram?
Við erum ekki að bjóða okkur fram til að halda hlutunum óbreyttum. Við viljum breyta og bæta og nýta tækifærin fyrir bæjarfélagið okkar til að tryggja að raunveruleg breyting fylgi. Við trúum því að Miðflokkinn geti verið afl til breytinga í Reykjanesbæ, en það gerist aðeins ef það er vilji fólksins til að breyta.
Veldu
Ekki fleiri afsakanir.
Ekki fleiri tafir.
Ekki fleiri loforð sem gleymast eftir kosningar.
Kjóstu breytingar.
X – Miðflokkurinn.
Gunnlaugur Kárason,
oddviti Miðflokksins í Reykjanesbæ
Rúnar Fossádal Árnason,
skipar 2. sæti Miðflokksins í Reykjanesbæ









