Aðsent

Formanni Samtaka ferðaþjónustunnar svarað
Fimmtudagur 4. júní 2020 kl. 21:07

Formanni Samtaka ferðaþjónustunnar svarað

Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar bregst illa við facebookfærslu minni sem ég setti fram í fyrradag eftir lestur fréttar um viðtal við Gylfa Zoega prófessor í hagfræði þar sem hann ræddi m.a. ósjálfbæran vöxt ferðaþjónustunnar.

Vegna viðbragða Bjarnheiðar vil ég taka það skýrt fram að ég ber enga óvild í brjósti til ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar, þvert á móti. Og ég hef miklar áhyggjur af fólkinu sem starfar við ferðaþjónustu og hefur nú misst vinnuna og óvissa er framundan. Fólk sem hefur með hug, hönd og hjarta skapað frábærar aðstæður til að taka á móti gestum. Ég finn sannarlega til með eigendum ferðaþjónustufyrirtækja sem sitja uppi með fjárfestingar sem nú eru í uppnámi. Ég óska þeim alls hins besta og vona innilega að hagur greinarinnar vænkist sem allra fyrst. Það eru hagsmunir okkar allra.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Facebookfærsla mín snerist um gagnrýni á stjórnvöld fyrir það að hafa hvatt til vaxtar ferðaþjónustunnar án mótvægisaðgerða. Ég hef gagnrýnt það harðlega síðastliðin átta ár að stjórnvöld hafi ýtt undir vöxt greinarinnar á meðan innviðir samfélagsins hafi ekki verið búnir undir þann vöxt. Álagið á vegi landsins hefur kallað á viðhald og framkvæmdir sem ekki hafa átt sér stað. Álag á lögreglu hefur verið svo mikil að þjónusta við íbúa hefur orðið útundan í fjölmennustu ferðamannasveitarfélögunum. Álag á heilsugæslu og heilbrigðiskerfið hefur einnig aukist því ferðamenn slasast og verða veikir líkt og aðrir. Slík vinnubrögð stjórnvalda þjóna heldur ekki hagsmunum atvinnugreinarinnar.

Gagnrýni mín snýr að stjórnvöldum sem búið hafa atvinnugreininni umgjörð sem ekki hélt nægilega sem stuðningur þegar gaf á bátinn. Enginn efast um að greinin aflaði mikilla gjaldeyristekna sem skiluðu sér til hagsbóta fyrir þjóðarbúið. En greinin er viðkvæm fyrir sveiflum og mörg fyrirtæki voru farin að draga saman seglin fyrir heimsfaraldurinn.

Ferðaþjónustan mun í framtíðinni gegna stóru hlutverki í íslensku atvinnulífi. Hún mun vaxa á ný en sá vöxtur þarf að vera jafn og traustur. Fleiri stoðum þarf einnig að renna undir atvinnulífið. Gerum það saman á leiðinni okkar upp úr þeirri lægð sem heimsfaraldurinn gerði enn dýpri hér á landi.

Ég hef nú þegar boðið Bjarnheiði á þingflokksfund Samfylkingarinnar sem hún hefur þegið. Samtal er betra en skeytasendingar og við í Samfylkingunni viljum gjarnan eiga gott samstarf við fulltrúa allra atvinnugreina, ekki síst þessarar ungu og þróttmiklu greinar sem á eftir að auðga samfélag okkar í bráð og lengd.

Oddný Harðardóttir