Aðsent

Eftirfylgd með nemendum 16–18 ára í Suðurnesjabæ
Nemendur í Sandgerðisskóla.
Þriðjudagur 26. maí 2026 kl. 14:54

Eftirfylgd með nemendum 16–18 ára í Suðurnesjabæ

Það eru ýmsar leiðir farnar varðandi virkniúrræði fyrir þá sem eru atvinnulausir eða með sjúkdóma/greiningar en ekki er almenn eftirfylgd með öllum á þessum aldri.

Það að hringja í nemendur sem voru í grunnskólanum, sýna áhuga á því hvað þeir eru að gera, hvort þeir séu í vinnu, skóla eða hafi ekkert fyrir stafni og bjóða þá þeim sem vilja aðstoð við að komast aftur í nám eða annað. Margir þessara nemenda hafa staðið höllum fæti og sýna EKKI frumkvæði í að fara af stað í einhverjar virkniaðgerðir, s.s. skóla/námskeið, búa jafnvel heima í foreldrahúsum og einangra sig þar við tölvur/TV o.þ.h.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Það er mikilvægt að sveitarfélagið rétti þessum einstaklingum líflínu og dragi þá dálítið að landi, a.m.k. fyrsta spölinn þar til þeir geta synt sjálfir af öryggi.

Ég undirrituð hóf að fylgja nemendum eftir í framhaldsskóla haustið 2005 með nemendum í árgangi 1995. Í upphafi hafði ég frumkvæði að því að hafa samband við nemendur og kanna líðan og hvernig gengi í framhaldsskóla. Ég bauð nemendum aðstoð varðandi námið og skipulag þess og ef viðkomandi vildi ekki vera lengur í skóla þá bauð ég viðkomandi aðstoð við gerð ferilskráar og umsókna um störf til þess að þeir kæmust út á vinnumarkað en myndu ekki einangrast heima og missa tengsl við félagana. Fyrstu árin var eftirfylgdin aðeins frá Sandgerðisskóla og ekki formlegt plagg og úrvinnsla.

Árið 2014 hófu fræðsluyfirvöld að byggja upp formlegt plagg sem innihélt ákveðna verkferla og svo færðist þessi eftirfylgd einnig til Gerðaskóla og Stóru-Vogaskóla en þessi bæjarfélög eru með sameiginlegt félags- og velferðarsvið. Suðurnesjabær og grunnskólarnir settu upp formlegt plagg þar sem tiltekið var hverjir væru ábyrgðaraðilar með verkefninu og hvert hlutverk hvers og eins væri. Þessi samstarfshópur hittist einu sinni á ári til að skoða hvort uppfæra þurfi verkefnið.

Verklýsing var sett upp og gætt vel að persónuverndarþættinum. Verkefnið var kynnt að vori í 10. bekk fyrir nemendum og forráðamönnum þeirra. Þeir sem vilja taka þátt skrifa undir upplýst samþykki fyrir því að námsráðgjafi geti fylgt þeim eftir í framhaldsskóla og fengið upplýsingar um framvindu nemenda hjá námsráðgjafa í framhaldsskólanum. Þegar skóli hefst fær námsráðgjafi upplýsingar um hvort allir nemendur sem sóttu um hafi skilað sér í skólann. Þegar kemur að miðannarmati fær námsráðgjafi póst um það hvernig gengi hjá nemanda, hvort hann sé enn í skólanum og hvort viðkomandi þurfi frekari aðstoð. Nemendur geta leitað til okkar í grunnskólanum ef þeir þurfa aðstoð. Náms- og starfsráðgjafi í FS hefur aðstoðað bæjaryfirvöld í þessu verkefni og eiga þakkir skildar þar sem þetta úrræði gengi ekki nema með aðstoð frá námsráðgjöfum, reyndar námsráðgjöfum í fleiri framhaldsskólum.

Ef nemandi skráir sig úr skóla þá fær námsráðgjafi póst um það, hefur samband við nemandann og býður honum aðstoð við að komast í önnur námsúrræði en ef viðkomandi vill ekki í nám heldur komast út á vinnumarkaðinn fyllir námsráðgjafi út tilvísunarplagg og kemur til félagsþjónustu bæjarins. Þar tekur félagsráðgjafi boltann, hefur samband við viðkomandi nemanda og býður aðstoð við að komast í annað virkniúrræði svo nemandinn einangrist ekki heima og missi tengsl við jafnaldrana.

Þeir nemendur sem skrifa ekki undir upplýst samþykki fá samt fyrirspurn beint frá námsráðgjafa, t.d. í skilaboðum á samfélagsmiðlum, um það hvernig þeim gangi en þar er það þeirra val að svara eða ekki. Nemendur geta einnig óskað eftir aðstoð námsráðgjafa sjálfir þó að þeir hafi ekki skrifað undir upplýst samþykki. Engum nemendum er neitað um aðstoð en námsráðgjafi fær ekki upplýsingar um gengi viðkomandi nema þá frá honum sjálfum.

Nemendur hafa oft haft samband, beðið um upplýsingar, aðstoð við verkefni sín, yfirlestur verkefna o.þ.h. en námsráðgjafi hjálpar þeim ef mögulegt er. Það eru mjög fáir sem hafa skrifað undir upplýst samþykki sem hafa hætt námi. Ég hef sent sex tilvísanir til félagsþjónustu frá 2017.

Það er mikilvægt fyrir ungmennin, fjölskyldur þeirra og samfélagið í heild að skólaganga þeirra í skyldunámi sem og í framhaldsskóla sé farsæl fyrir samfélagið í heild. Allir eru mikilvægir í tannhjólinu sem keyrir samfélagið áfram.

Síðustu ár hefur náms- og starfsráðgjafi Sandgerðisskóla skilað vorskýrslum um verkefnið, þar sem fram koma upplýsingar um hvernig nemendum skólans hefur gengið í framhaldsskólanum og hvort eitthvert brotthvarf hafi verið.

Það er mikilvægt að fylgja nemendum eftir enda eru þeir börn til 18 ára aldurs en á þeim tímamótum dettur þessi formlega eftirfylgd niður en þau geta eftir sem áður átt aðgang að námsráðgjafa skólans, a.m.k. hjá okkur í Sandgerðisskóla.

Ragnhildur l. Guðmundsdóttir

Náms- og starfsráðgjafi

Sandgerðisskóli

[email protected]

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar