Aðsent

Sjálfstæðisflokkurinn auglýsir eftir framboðum á lista
Mánudagur 5. febrúar 2018 kl. 06:00

Sjálfstæðisflokkurinn auglýsir eftir framboðum á lista

Fréttatilkynnning frá Sjálfstæðisflokknum í Reykjanesbæ
Uppstillingarnefnd fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ hefur verið falið að gera tillögu að framboðslista fyrir kosningarnar í vor. Af því tilefni auglýsir nefndin nú eftir framboðum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí 2018.
Þeir sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018 skulu senda uppstillingarnefnd skriflega kynningu þar sem þeir kynna sig og sinn bakgrunn auk þess að tilgreina hvaða sæti á lista sóst er eftir.
Frambjóðendur skulu eiga kosningarétt í kosningum til sveitarstjórnar vorið 2018, vera íslenskir ríkisborgarar og fullra 18 ára þegar kosningar fara fram, eiga lögheimili í sveitarfélaginu og vera meðlimir í Sjálfstæðisfélögunum í Reykjanesbæ.
Framboðum skal skilað netfangið: [email protected] í síðasta lagi fimmtudaginn 15. febrúar n.k.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024