Aðsent

Hvernig er gott samfélag?
Föstudagur 18. maí 2018 kl. 10:47

Hvernig er gott samfélag?

Stjórnmálamenn hafa það eina hlutverk og þá einu skyldu að gera það sem í þeirra valdi stendur til að bæta lífsgæði fólks í nútíð og framtíð þannig að það geti sjálft leitað hamingjunnar. Bæjarfélag þar sem sátt er um það meginmarkmið að tryggja fólki og fyrirtækjum sem jöfnust tækifæri tryggir líka almenna velmegun. Jafnræði, frelsi og sanngirni stuðlar að stórbættum lífsgæðum og hamingju alls almennings.
 
Jöfn tækifæri
 
Samfylkingin í Grindavík vill marka til framtíðar, stefnu fyrir bæjarfélagið sem miðar að því að allir íbúar hafi jöfn tækifæri til að nýta margbreytilega hæfileika sína sjálfum sér og okkur öllum til framdráttar. Við leggjum líka mikla áherslu á að það sé gert í fullkominni sátt við náttúruna og umhverfið, með sjálfbærni og ábyrgð og langtímahagsmuni Grindvíkinga að leiðarljósi. Við viljum leggja okkar af mörkum við að byggja hér upp öflugt efnahags- og velferðarkerfi sem býr við heilbrigt samkeppnisumhverfi sem hvetur fjárfesta og frumkvöðla til framtaks, athafna og fjárfestinga. Það mun skapa ótal tækifæri. Tækifæri sem munu gera okkur öllum kleift að fá vinnu sem henta okkar margvíslegu hæfileikum og áhugamálum.
 
Enga fordóma
 
Við í Samfylkingunni viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar til þess að hér verði gott að lifa og starfa fyrir alla og að allir fái að vera með, án þess að þurfa að þola mismunun og fordóma. Þetta hefur alltaf verið mikilvægt en þó aldrei sem nú á tímum margbreytileika mannlífsins og allra þeirra stórkostlegu tækifæra sem því fylgja. Við þurfum að hafa vit á að nýta þessi tækifæri en reisa ekki veggi og óþarfar, gagnslausar hindranir fyrir okkur sjálf og aðra vegna þröngsýni og kjarkleysis. 
 
Við eigum að leggja höfuðáherslu á að efla forvarnir og mæta börnum sem eiga við ýmis konar raskanir að stríða strax á fyrstu stigum og tryggja að þeir sem eiga við geðheilbrigðisvanda að etja fái viðeigandi þjónustu hratt og örugglega. Börnin okkar eru framtíðin og við berum öll saman ábyrgð á að þau fái öll notið öll hennar. Það er lang mikilvægasta verkefnið sem okkur er treyst fyrir, sem einstaklingum og sem samfélagi. Samfélagi sem býr vel að börnum sínum líður vel í dag og hlakkar til morgundagsins. 
 
Stöndum saman og vinnum saman!
 
Að byggja upp samfélag sem er og verður besta útgáfan af sjálfu sér er mikil áskorun. Áskorun sem krefst kjarks og þátttöku allra þeirra sem þetta bæjarfélag byggja. Þátttöku kjörinna fulltrúa, atvinnulífsins, skólasamfélagsins, samtaka og félaga og ekki síst alls fólksins sem í bæjarfélaginu býr, ungra og aldinna, kvenna og karla. Við eigum ekki að einblína á það sem skilur okkur að og okkur greinir á um. Við eigum að horfa fyrst og fremst á það sem er okkur sameiginlegt og hvernig við getum eflt og ræktað það það sem sameinar okkur.
 
Þannig gerum við gott samfélag betra.
 
Páll Valur Björnsson 
oddviti Samfylkingar í Grindavík
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024