Aðsent

  • Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar 2015
  • Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar 2015
Laugardagur 12. september 2015 kl. 11:48

Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar 2015



Vikuna 28.september - 4. október næstkomandi verður haldin Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ. Þetta er í áttunda skiptið sem heilsu- og forvarnarvikan er haldin undir kjörorðinu Samvinna-Þátttaka-Árangur. Markmiðið með heilsu- og forvarnarvikunni er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingar geta staðið frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum með þátttöku allra bæjarbúa og því er leitað til ykkar. 
 

Vonumst við til að fyrirtæki og stofnanir í bænum taki virkan þátt í verkefninu með því að bjóða bæjarbúum upp á eitthvað heilsutengt þessa vikuna. Markmiðið er að heilsu-og forvarnarvikan sé fjölbreytt og höfði til sem flestra. 

 

Allar stofnanir Reykjanesbæjar taka þátt í verkefninu og er það von okkar að sem flest fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og íþrótta-og tómstundafélög í Reykjanesbæ sjái hag sinn í þátttöku verkefnisins. 

 

Ætlunin er að útbúa viðburðadagatal yfir þau tilboð og verkefni sem verða í gangi í heilsu- og forvarnarvikunni og verða ýmsar leiðir nýttar við að auglýsa verkefnið sjálft. 

 

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 898-1394 eða á netfangið [email protected]. Skila þarf upplýsingum/dagskrá fyrir 21. september nk. til að vera með í viðburðardagatalinu. 
 
f.h. Fræðslusviðs og Velferðarsviðs,
 
Hafþór Barði Birgisson Íþrótta- og tómstundafulltrúi

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024