Betri Bær ljósanótt
Betri Bær ljósanótt

Viðskipti

Ásta Dís hættir sem framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar
Föstudagur 29. ágúst 2014 kl. 21:18

Ásta Dís hættir sem framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar

Ásta Dís Óladóttir framkvæmdastjóri hefur tekið þá ákvörðun að ljúka störfum sínum hjá Fríhöfninni. Starfsmenn Fríhafnarinnar fengu tilkynningu um það í dag.

Í tölvupósti til starfsmanna eru Ástu Dís þakkað fyrir vel unnin störf hjá félaginu og henni óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi. Ásta Dís vildi ekki tjá sig frekar um óvænt starfslok við vf.is. Hún var meðal umsækjenda í starf bæjarstjóra nýlega en dróg svo umsókn sína til baka, m.a. vegna hvatningar frá starfsfólki Fríhafnarinnar, að því er kom fram í tilkynningu frá henni.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Ásta Dís mun láta af störfum við lok dags 3. september. Fljótlega eftir helgi  verður tilkynnt hver mun tímabundið gegna stöðu framkvæmdastjóra þar til búið er að ráða í stöðuna.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn