MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Mannlíf

VefTV: Hárið fékk að fjúka fyrir UNICEF
Helga Sóley og Birta Dís með fléttu úr hári sínu sem mun renna til Krabbameinsfélagsins og verður hárið að öllum líkindum notað í hárkollur. VF-Myndir/JJK.
Þriðjudagur 18. desember 2012 kl. 20:51

VefTV: Hárið fékk að fjúka fyrir UNICEF

Þær Birta Dís Jónsdóttir og Helga Sóley Halldórsdóttir, nemendur í 10. bekk Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, stóðu við stóru orðin og létu hárið fjúka til styrktar UNICEF. Eins og við greindum frá í síðustu viku þá söfnuðu þær stúlkur áheitum til styrktar UNICEF og áformuðu í staðinn að láta snoða af sér hárið.

Eftir að hafa safnað yfir 100 þúsund krónum var kominn tími til að láta hárið fjúka og það gerðu þær stúlkur Í gærkvöld. Birta Dís var fyrri til og svo fylgdi Helga Sóley í kjölfarið. Það voru blendnar tilfinningar hjá þeim stúlkum eftir að slökkt var rakvélinni.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

„Ég lít út eins og bróður minn,“ sagði Helga Sóley eftir að hárið var farið. „Strákarnir eiga örugglega ekki eftir að taka vel í þetta,“ segir Birta Dís og hlær. „Það gerir þetta mikið léttara að við vorum að gera þetta fyrir gott málefni.“

Víkurfréttir fylgdist með því þeim stúlkum í kvöld er hárið fékk að fjúka og má sjá afraksturinn í myndbandinu hér að neðan. Söfnunin verður ennþá í gangi fram á föstudagkvöld og má heita á þær stúlkur með því að leggja inn frjáls framlög á bankareikning sem þær Birta og Helga hafa stofnað. R.nr.: 0142-05-071036, kt.: 230197-2969. Hér má Facebook síðu þeirra stúlkna.


Vinir þeirra Helgu Sóleyar og Birtu Dísar hvöttu þær stúlkur áfram.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn