Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Tónlistarskólinn í Grindavík tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna
Laugardagur 9. október 2021 kl. 09:01

Tónlistarskólinn í Grindavík tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna

Tónlistarskólinn í Grindavík er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2021 sen þau verða veitt á Bessastöðum 10. nóvember nk. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbótastarfs. 

Tónlistarskóli Grindavíkur er tilnefndur fyrir framúrskarandi tónlistarkennslu og þróunarstarf. Verðlaunin verða veitt í fjórum flokkum. Ein verðlaun verða veitt skóla eða annarri menntastofnun fyrir framúrskarandi starf. Í annan stað verða kennara sem stuðlað hefur að framúrskarandi menntaumbótum veitt verðlaun. Þriðju verðlaunin verða veitt þróunarverkefni á sviði menntunar sem stenst ítrustu gæðakröfur. Að auki verður veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem lagt hafa af mörkum við að stuðla að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. 

Public deli
Public deli

Að Íslensku menntaverðlaununum standa: Embætti forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneyti, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands (listkennsludeild og tónlistardeild), Menntamálastofnun, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.