Mannlíf

Sparri fagnar aldarfjórðungi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 8. maí 2021 kl. 07:33

Sparri fagnar aldarfjórðungi

Byggingarfélagið Sparri fagnar aldarfjórðungsafmæli um þessar mundir og bauð af því tilefni til afmælisveitinga og sýningar á splunkunýrri raðhúsalengju við Hafdal í Innri Njarðvík síðasta laugardag. Fjöldi fólks mætti og óskaði bræðrunum Arnari Jónssyn og Halldóri V. Jónssyni, eigendur Sparri til hamingju með afmælið.

Þeir bræður eru orðnir afkastamestu byggingarverktakarnir á Suðurnesjum en þeir hafa komið víða við. Starfsmenn eru 20-25 manns og á afmælisdaginn voru sýndar nýjar raðhúsaíbúðir við Hafdal. Sparramenn eru alltaf byrjaðir á nýju verkefni áður en síðsta klárast og reksturinn hefur gengið vel hjá bræðrunum sem þykja góðir atvinnurekendur. Þegar verkefnalistinn er skoðaður hjá Sparra má sjá að hann er mjög langur og verkefnin hafa verið mörg. „Íbúðir seljast ansi hratt þessa dagana. Lágir vextir hafa haft mikið að segja í því en við vitum ekki hvað það varir lengi,“ sagði Arnar í stuttu spjalli við Víkurfréttir sem litu við og smelltu nokkrum myndum af gestum og eigendum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024