Mannlíf

Skrápur í Listasafni Reykjanesbæjar
Föstudagur 3. desember 2021 kl. 06:53

Skrápur í Listasafni Reykjanesbæjar

Skrápur/SecondSkin, sýning með Ráðhildi Ingadóttur og Igor Antić, opnaði hjá Listasafni Reykjanesbæjar þann 20. nóvember síðastliðinn.

Sýningin fjallar um flótta og tilfærslur þjóða í heiminum. Nafnið Skrápur vísar í skjól sem líkaminn býr til sjálfur yfir tíma, fyrir utanaðkomandi áreiti. Einnig vísar orðið í skráp sem manneskjan kemur sér upp huga sínum til varnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Báðir listamennirnir hafa gert málefni þjóðaflótta og átaka sem af því hlýst að umfjöllunarefni í fyrri sýningum.

Ef land væri ekki rammað inn, þá væru ekki til nein yfirráðasvæði. Það myndi ekki koma í veg fyrir það að hlutir væru til en þeir hefðu ekki sömu merkingu og væru án sjálfstæðrar tjáningar sem væri fær um að magna og breyta hinum lifandi líkama. Afmörkun yfirráðasvæðis gerir það að verkum að litir, áferðir, taktur, massi og þyngd fá aðra merkingu innan síns afmarkaða svæðis. Þetta gerir þeim mögulegt að hafa áhrif á manneskjuna, koma af stað hughrifum sem eru dregin út frá svæðinu sem, þegar best lætur, verður túlkað á sviði lista.

Með umhverfi bæjarfélagsins í huga ákvað safnstjóri að setja upp sýningu sem fjallar um hugmyndina að leita skjóls.

Verk eftir Igor Antić, á sýningunni Skrápur, er unnið í samvinnu við Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum. Sýningin stendur til og með 30. janúar 2022. Sýningarstjóri er Helga Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar. Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.

Ráðhildur Ingadóttir (1959)

Ráðhildur vinnur með ákveðna hugmyndafræði í verkum sínum sem hún útfærir í marga miðla; texta, teikningu, málun, skúlptúr og myndbönd, og er framsetning þeirra jafnan í margslungnum innsetningum.

Ráðhildur hefur haldið margar einkasýningar, sú fyrsta var í Nýlistasafninu árið 1986, og verið valin til þátttöku á samsýningar bæði hér á landi og víða um Evrópu. Verk eftir hana eru í eigu Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur og Nýlistasafnsins. Ráðhildur hefur unnið víðsvegar sem sýningarstjóri, árin 2013 og 2014 hlaut hún heiðursstöðu sem listrænn stjórnandi Skaftfells - miðstöðvar myndlistar á Austurlandi.

Ráðhildur stundaði nám í myndlist á Englandi 1981–1986, við Emerson College í Sussex og St. Albans College of Art and Design. Hún var stundakennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Listaháskóla Íslands 1992–2002 og einnig gestakennari við Konunglegu myndlistarakademíuna í Kaupmannahöfn. Ráðhildur var í stjórn Nýlistasafnsins 2000–2002. Hún hefur hlotið hin ýmsu starfslaun og styrki bæði á Íslandi og í Danmörku. Ráðhildur er fædd í Reykjavík, hún býr og starfar í Kaupmannahöfn og á Seyðisfirði.

Igor Antić (1962)

Igor kannar hugtök í staðbundnum (e. site-specific) verkum, innan tiltekins samhengis sem getur verið pólitískt, efnahagslegt, menningarlegt og samfélagslegt. Verkin birtast í mismunandi miðlum, eins og ljósmyndum, myndböndum og innsetningum.

Antić hefur haldið fjölmargar einkasýningar og verið valinn til þátttöku á samsýningar víðsvegar í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Þar á meðal hefur hann áður sýnt á Íslandi í Nýlistasafninu á sýningunni Polylogue 158 árið 1999. Antić var sýningarstjóri Values: 11th Biennial of Visual Arts í Pancevo, Serbíu, árið 2004.

Antić nam myndlist á árunum 1984–1991 við Novi Sad Academy of Fine Arts, Serbíu, École Nationale Supérieure des Beaux-Arts, París, og Institut des Hautes Etudes en Arts Plastiques, París. Árið 1995 stofnaði hann Pokret Encounter Centre í Novi Sad, Serbíu, hreyfingu listamanna á stríðstímum. Antić hefur unnið til ýmissa verðlauna, m.a. hlaut hann The Pollock-Krasner Foundation’s Grant í New York árið 2000. Antić er fæddur í Novi Sad, Serbíu, hann býr og starfar í París.