Sjóarinn síkáti syngur sig inn í hug og hjörtu landsmanna
Fiskisúpa áður en haldið er á bryggjutónleika á föstudagskvöldinu
Sjóarinn síkáti er sjómanna- og fjölskylduhátíð sem fram fer í Grindavík um helgina. Hátíðin fer fram um sjómannadagshelgina ár hvert, þ.e. fyrstu helgina í júní. Grindvík er einn öflugasti sjávarútvegsbær landsins og því mikið um að vera þessa helgi í tilefni sjómannadagsins. Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar, segir mikla eftirvæntingu vera eftir hátíðinni í ár.

Grindvíkingar taka forskot á sæluna í byrjun vikunnar og byggja upp stemmningu fyrir hátíðinni með viðburðum sem reka hvern annan. Miðvikudagskvöldið 31. maí verður t.d. kvikmyndin Nýtt líf sýnd í Kvikunni, menningarhúsi og fimmtudagskvöldið 1. júní verða tónleikar á veitingahúsum bæjarins.
Margir bíða spenntir eftir föstudagskvöldinu. Í ár er bryddað upp á þeirri nýjung að Nettó býður Grindvíkingum og gestum upp á fiskisúpu fyrir utan íþróttamannvirkin áður en litaganga leggur af stað í átt að hátíðarsvæðinu neðan við Kvikuna. Þar verður líka lukkuhjól fyrir börnin, tónlist og fleira spennandi.
„Við bjóðum alla landsmenn velkomna með okkur í litagönguna og í framhaldi á skemmtilega bryggjutónleika sem ættu að henta allri fjölskyldunni,“ segir Eggert.
Á hátíðarsviðinu kemur fram landsþekkt tónlistarfólk; KK, Daniil, Klara Elías og FLOTT. Kynnar kvöldsins verða Vinir Ragga Bjarna, þeir Björgvin Frans Gíslason og Ásgeir Páll Ásgeirsson.
Á laugardeginum er öllum boðið í skemmtisiglingu áður en við tekur fjölskyldudagskrá á hátíðarsviðinu. Knattspyrnudeild UMFG er að skipuleggja furðubolta og ungmennaráð götuboltamót. Skráning í mótið er hafin á grindavik.is og geta ungmenni, sextán ára og eldri, tekið þátt.
Um kvöldið fer fram sjómannaball á vegum UMFG en það hefur verið vel sótt undanfarin skipti sem það hefur farið fram.
Á sjómannadeginum sjálfum fara fram hefðbundin hátíðarhöld í tilefni dagsins. Sjómannaþrautirnar vekja alltaf mikla athygli en keppt er í koddaslag, kararóðri og flekahlaupi.
Í ár verður afhjúpaður nýsmíðaður áttæringur en áttæringar og aðrir árabátar voru þau skip sem Grindvíkingar, og reyndar landsmenn allir, treystu á öldum saman. Báturinn er einstök smíði og á án efa eftir að vekja mikla athygli.
Eggert segist að lokum hvetja Suðurnesjamenn og landsmenn alla til að eiga góða helgi í Grindavík og njóta þess sem bærinn hefur upp á að bjóða.
Dagskrá helgarinnar má finna á sjoarinnsikati.is en nánari upplýsingar um einstaka viðburði er einnig að finna á grindavik.is.